20.10.1934
Neðri deild: 15. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í B-deild Alþingistíðinda. (996)
22. mál, verkamannabústaðir
Jóhann Jósefsson [óyfirl.]:
Á þskj. 147 eru tvær brtt., sem ég flyt við þetta frv. Mér þótti ekki vera eins augljóst og skyldi af 7. gr. frv., að heimild væri til þess fyrir byggingarfélög að hafa sameiginleg miðstöðvarhús, þvottahús og búð fyrir matvöruverzlun fyrir íbúðirnar, hvort sem þau koma upp sambyggingum eða sérstæðum húsum. Vildi ég láta taka af öll tvímæli um þetta með því, eins og stendur á þskj. 147, að í staðinn fyrir „Byggingarfélagi, sem kemur upp sambyggingum“ komi: Byggingarfélögum, sem koma upp sambyggingum eða sérstæðum húsum“.
Þá er hin brtt. við 11. gr., sem þegar hefir verið minnzt á. Ástæðan til hennar er sú, að ákvæði laganna um það, að ríkissjóður skuli sjá byggingarfélögunum fyrir teikningum og fyrirmyndaruppdráttum að húsum félagsmanna, hefir verið þannig útfært, að húsameistari hefir verið látinn gera teikningarnar og aðrar tillögur lítið komizt að til athugunar. En ekki hvað sízt við slíkar byggingar, sem hér er um að ræða, er mjög nauðsynlegt, að allar leiðir séu athugaðar, sem til greina geta komið, svo byggingarnar verði eins vel úr garði gerðar eins og unnt er. Vegna kostnaðarins hlýtur húsrúmið fyrir hverja fjölskyldu að vera mjög takmarkað, og þeim mun meira ríður þá á, að því sé sem haganlegast fyrir komið. Ég vil með brtt. minni opna leið til þess að þróun - það orð er svo oft nefnt hér í hv. d. - geti átt sér stað á þessu sviði, og verður bezt gert á þann hátt, að byggingarfróðir menn fái að spreyta sig á að gera teikningar af húsunum. Ég skal játa, að brtt. hv. þm. V.-Ísf. er fyllri, þar sem hún setur nokkra takmörkun á því, hvað til þess arna megi kosta. Það er náttúrlega allur varinn góður, þegar um greiðslur úr ríkissjóði er að ræða, og þó ekki sé beinlínis ástæða til að óttast, að byggingarfélög fari að leggja í svo mikinn kostnað við útvegun teikninga frá sérfróðum mönnum, að það nemi stórum upphæðum, þá viðurkenni ég, að réttara sé, að ráðh. úrskurði slíka reikninga. Þar sem hv. þm. V.-Ísf. virðist að öðru leyti hafa tekið upp sömu hugsun og ég og till. hans nær þeim tilgangi, sem fyrir mér vakti, þá mun ég að sjálfsögðu taka mína till. aftur og greiða hans till. atkv.
Ég ætla ekki að láta mig miklu skipta þær deilur, sem hér hafa farið fram, og ekki taka mikinn þátt í þeim. Aðallega hafa þær snúizt um það, hvort aðeins eitt byggingarfélag ætti að taka gilt í hverjum kaupstað, eða hvort þau mættu vera fleiri. Það má vafalaust segja hverju fyrirkomulaginu sem er sitthvað til framdráttar. Hinsvegar verður ekki komizt hjá að vita það - það er ekkert launungarmál -, að tilefnið til þess, að nú er efnt til þeirrar breyt. á l., að aðeins eitt byggingarfélag í hverjum kaupstað skuli geta notið þeirra fríðinda, sem hér er um að ræða, það er, að óháðir verkamenn hér í bænum hafa stofnað nýtt byggingarfélag við hliðina á því, sem fyrir er. Mér virðist, úr því að stofnun þessa félags hefir farið fram á þeim tíma, sem skýr lagabókstafur er fyrir því, að fleiri en eitt félag á sama stað hafi rétt til þessara hlunninda, þá sé skylt að lofa því að lifa og dafna. Það hefir verið stofnað með því fyrirheiti frá Alþingi og stj. í staðfestum lögum, að það fengi að njóta þeirra fríðinda, sem l. tiltaka. Þess vegna finnst mér ekki rétt að hlaupa nú til og breyta l. á þann hátt, að þessu nýja félagi sé gert ómögulegt að starfa, þar sem ekkert hefir komið fyrir, sem sýnir eða sannar, að óheppilegt sé, að félögin séu fleiri en eitt. Eins og ég sagði áðan, má vitanlega koma með ýmsar getgátur um það, að heppilegra sé að hafa eitt félag heldur en tvö, og eins um það, að heppilegra sé að hafa tvö heldur en eitt. Það leiði ég alveg hjá mér. En ég vil, að Alþingi horfist í augu við þá staðreynd, að félag sjálfstæðra verkamanna er stofnað með fullkomnu fyrirheiti löggjafarinnar um styrk, og mér finnst Alþingi ekki geta að vansalausu kippt að sér hendinni í þessu efni, eftir að félagið er farið að starfa.