20.10.1934
Neðri deild: 15. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (998)

22. mál, verkamannabústaðir

Ásgeir Ásgeirsson [óyfirl.]:

Mér þykir nú nóg um, þegar það er kallað einræðisbrölt og flokksofstæki, þótt talað sé um, að allir, sem eignast vilja hús, séu í einu byggingarfélagi. Fyrr má nú vera ofstopinn og einræðið! Þessi ofstopi var þó talsvert lengi í gildi, sem sé áður en félögin urðu tvö, og kvartaði samt enginn um.

Hvað á það skylt við, að allir stjórnmálamenn séu í einum flokki, þótt byggingarfélag væri ekki nema eitt? Pólitískir flokkar vilja leysa mál þjóðarinnar með ýmsu móti. En hvað vilja byggingafélögin? Þau vilja hjálpa mönnum til að koma sér upp húsum. (TT: Með ýmsu móti). Já, með ýmsu móti. Ef einn óskar eftir sérstöku húsi, en annar vill hafa sambyggingu, þá á að vera svigrúm til þess, að báðir geti fengið óskum sínum fullnægt. Þetta er nú ofstækið, sem hv. þm. talar um. Sér er nú hvert ofstækið! Og einræðið, sem hv. þm. talar um, er helzt fólgið í því, að hver geti fengið það, sem hann vill í þessu tilliti.

Hér er um svo skýran og samstæðan tilgang að ræða, að þar getur engin flokkaskipting að komizt. Er það illt verk að vera að vekja óánægju þessa fólks, sem engum rétti hefir verið rænt.

Hv. þm. Snæf. lagði áherzlu á það, að hann vildi ekki vera í byggingarfélagi, þar sem Héðinn Valdimarsson væri formaður. Ég verð nú að segja, að ef til mín kæmi maður og segðist vilja vera í sjálfstæðu byggingarfélagi, af því að hann vildi ekki vera meðlimur félags, þar sem Héðinn Valdimarsson væri formaður, þá myndi ég svara, að þetta væri óraunveruleg krafa, sem ekki yrði tekið tillit til, að svo miklu leyti sem ég réði þar nokkru um.

Hv. þm. Snæf. sagði, að ástæðan fyrir því, að annað byggingarfélag var stofnað, hafi verið sú, að ágreiningur hafi risið út af þeim málum, sem hér ræðir um. Mér er ekki kunnugt um þennan ágreining. Hv. 2. þm. Reykv, hefir lýst yfir því, að hann geti fallizt á samábyrgð þá, sem hv. þm. Snæf. óskar eftir. Hann hefir líka lýst sig samþykkan því, að menn mættu reisa hús út af fyrir sig. Svona mikill er þá ágreiningurinn, að þeir eru báðir sammála. Þegar svona mikill er ágreiningurinn, undrar mig ekki, þótt hv. þm. tali um einræði og ofstopa!

Það er rétt, að samkv. till. á stj. félagsins að viðurkenna þann ágreining, sem verða kann innan félagsins, ef hann á að geta gefið tilefni til deildastofnunar, en hún á ekki heldur að hafa neinna pólitískra hagsmuna að gæta, sem hindrað gætu hana í því að taka tillit til allra félagsmanna jafnt. Þetta væri öðruvísi, ef ekki væri um það að ræða að koma sér upp heimili, heldur það, að byggja hús með samvinnusniði eða sjálfstæðissniði, trúað hús eða vantrúað.

Ég fylgi því, að félagar fái sem mest að ráða sínum málum sjálfir, að í félaginu fái að vera deildir, sem menn geti skipzt, í eftir ólíkum skoðunum á skipulagi húsa. Ég vil, að allir fái að njóta sín með sínar till.

Ég hefi svarað hv. þm. svona ýtarlega, af því að ég kann því illa að vera bendlaður við að vilja taka rétt af mönnum, annan en þann, að hver megi vera í sjálfstæðu félagi, en sá réttur er mönnum einskis virði. Hver, sem sýnir mér fram á, að mínar till. séu hættulegar óskum manna um að koma sér upp heimili sem líkustu því, er þeir kjósa að hafa það, getur komið til mín, og skal hann fá áheyrn. En þetta hefir mér ekki enn verið sannað.