20.10.1934
Neðri deild: 15. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 817 í B-deild Alþingistíðinda. (999)
22. mál, verkamannabústaðir
Stefán Jóh. Stefánsson:
Ég þarf ekki mikla að bæta við það, sem sagt hefir verið af meiri hl. n., og vil ég því ekki lengja umr. með deilum um það, hvort félögin eigi að vera 2 eða 1 sem láns eiga að njóta úr byggingarsjóði. Ég hefi gert grein fyrir minni afstöðu við 1. umr., og sé ég ekki ástæðu til að endurtaka það.
En út af brtt. minni á þskj. 166 vil ég taka það fram, að mér fannst vanta í frv. ákvæði um það, hvernig sjóðstj. ætti að fara að, ef fleiri en eitt byggingarfélag væri í kauptúni eða kaupstað, því að þó að frv. verði afgr. eins og það er nú, er ekki þar með bannað að stofna 2 byggingarfélög á sama stað, ef menn vilja. Nú hafa verið stofnuð tvö slík félög í hvorum af tveim kaupstöðum landsins. Er því nauðsyn á reglum til að fara eftir í slíkum tilfellum. Ég sting upp á því, að það félagið hljóti lánið, sem fyrst hefir hafið byggingarstarfsemi, en ef hvorugt eða ekkert félaganna hefir byrjað slíka starfsemi, þá fái það félag lánið, sem fyrr eða fyrst var stofnað. Þetta er gert til þess að byggingasjóðir hafi eftir einhverju að fara.