11.03.1935
Neðri deild: 25. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)

30. mál, útrýming fjárkláða

Gísli Sveinsson [óyfirl.]:

Svo að ég aðeins minnist á ummæli hv. þm. Ak. viðvíkjandi till., sem ég stend ekki að, en ætla að greiða atkv., þá eru þær till. í alla staði frambærilegar og réttar, og hann veit það, hv. þm., að það er aðferð, sem bæði er nothæf og notuð til þess að koma ákveðnum breyt. inn undir þær umr., sem hníga að sérstöku frv., sem fram hefir verið borið, að gera við það brtt., þótt þær séu um annað efni og færi málið inn á annað svið. Það er rétt, að þótt brtt. þessar séu að formi til við frv., þá hníga þær að því að breyta gildandi l, enda segir í brtt., að þau l. skuli falla úr gildi. Ég skil ekki, að brtt. verði hrundið af þeim ástæðum. Það er ekkert hneykslanlegt í þeim formlega séð frá þingsins sjónarmiði. En þeim er illa við till., landbn.-mönnum, af því að það barnar alveg söguna fyrir þeim. Nú er hætta mikil á, að þetta nái fram að ganga, þótt e. t. v. verði ekki svo í þessari d., og hætt við, að frv. landbn. mæti andstöðu nokkurri í Ed.

Mínar brtt. skal ég ekki ræða frekar en orðið er. Það er misskilningur, að þau héruð, sem alla tíð hafa reynzt laus við kláðann, eigi ekki heimtingu á því að vera undanskilin, þegar gera á þessa gangskör að því að útrýma honum. Það er ranglæti, ef þau verða ekki undanskilin. En það er ekki hægt fyrir héruðin að verja sig með því, að um smithættu eða líkur til smithættu geti ekki verið að ræða, því að alltaf má segja, að smithætta stafi af samgangi fénaðarins. Það á því að dæma eftir því, sem fram hefir komið, þ. e. a. s. hvort kláðans hefir orðið vart í héruðunum eða ekki. Til hvers halda hv. þm., að rannsókn á þessu efni hafi verið framkvæmd fyrir 1–11/2 ári síðan? Auðvitað til að komast að raun um, hvar kláðans hefir orðið vart og hve mikið. Það þarf ekki að útrýma kláða þar, sem enginn kláði er. Það er hættulegt eftir svona yfirlýsingar frá hv. landbn.-mönnum að samþ. 2. lið 1. gr., uni að þessi og þessi eigi að ráðstafa um þetta og þetta til þess að hindra, að þeim tilgangi laganna verði náð, að undanskilja böðuninni algerlega hrein svæði. Úr því að hv. landbn. hefir hér lýst yfir því, að það sé meiningin að taka hin ósýktu svæði einnig og láta fara þar fram böðun, er full ástæða til að taka gleggra til orða, svo að ótvírætt komi fram, hver sé tilætlunin.

Ég geri ráð fyrir því, að þeir, sem ekki vilja ganga inn á frv. n., samþ. fyrst þær brtt., sem fyrir liggja frá hv. þm. Borgf. og hv. þm. A.-Sk., og síðan, ef þær till. yrðu felldar, a. m. k. gangi inn á að samþ. till. á þskj. 107.