27.03.1935
Efri deild: 36. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

30. mál, útrýming fjárkláða

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég er ekki allskostar ánægður með frv. það, sem fyrir liggur, en hefi þó ekki borið fram breytingar við það, af því að ég tel hættu á því, að það fái ekki afgreiðslu fyrir þingfrestunina, ef það fer til Nd. aftur.

Ég er þakklátur frsm. fyrir þann góða hug, sem kom fram hjá honum í þá átt, að losna við þann vágest, sem fjárkláðinn er, og hefi ég ekki miklu við það að bæta, er hann sagði.

Mér líka vel ákvæði 7. gr. um það, að láta ekki sitja við eina útrýmingarböðun, ef hún ber ekki fullnægjandi árangur, en það, sem spillti árangri af böðununni eftir aldamótin, var einmitt það, að ekki var látin þegar fara fram önnur útrýmingarböðun á þeim bæjum, þar sem kláðinn gaus upp aftur, og bæjunum í kring. Ég álít þetta ákvæði því til mikilla bóta.

Ég hefi mikla von um, að þessi böðun takist a. m. k. ekki verr en sú fyrri eftir aldamótin, því að baðáhöld öll eru miklu fullkomnari nú en þá.

Út af því, sem hv. frsm. sagði um kostnað ríkissjóðs, að hann myndi geta orðið um 35 þús. kr., vil ég benda á það, að ríkissjóður greiðir nú árlega vegna fjárkláðans á 2. tug þúsunda. Það er því hátt reiknað, að aukin útgjöld af böðununni yrðu yfir 20 þús. kr. En ef böðunin tekst, hverfa hin árl. útgjöld alveg af ríkissjóði, svo að hér er um hreinan sparnað að ræða.

Þá vil ég minnast á heimild þá, sem í frv. er til að undanskilja svæði, þar sem fjárkláðans hefir ekki orðið vart síðustu 5 ár. Þetta er að vísu ógreinilega orðað, en ég býst við, að hér sé átt við sýslur, þar sem fénaður gengur ekki á milli af sjálfsdáðum. Þætti mér gott að heyra álit frsm. um þetta.