16.03.1935
Efri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 719 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)

52. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):

Ég býst nú ekki við, að ágreiningur um þetta mál hverfi við frekari umr., en vil þó svara nokkrum mótbárum, sem fram hafa komið.

Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að við flm. hefðum aðeins litið á aðra hlið málsins. Ég þóttist nú, satt að segja, hafa litið á báðar hliðar þess. Ég verð að álíta, að aðstandendur Söfnunarsjóðs geti vel unað við frv. Hv. 1. þm. Reykv. kallaði það jafnvel skattaálagningu á sjóðinn, að hann mætti ekki taka nema 5% vexti. Ég á nú erfitt með að sjá, að slíkt geti talizt nokkur skattur. Það er rétt, að töluvert hefir verið sótzt eftir lánum úr Söfnunarsjóði, en ef rétt er á litið, hafa þau ekki verið eins hagkvæm og af hefir verið látið. Árgjöld hafa að vísu verið lág, en oft aðeins vaxtagreiðsla, svo að skuldirnar hafa staðið óbreyttar. Ég get ekki séð, að það sé nein goðgá að lækka vextina nú. Hv. 1. þm. Reykv. bendir á í nál. sínu, að sjóðurinn sé stofnaður 1880, og talar um leið um tilgang hans. Þá tók sjóðurinn ekki nema 4% í vexti, enda voru þá vextir almennt lægri en síðar varð. Nú eru vextir að lækka aftur, og þurfa að lækka. Því ætti sjóðurinn nú að færa sig í þá átt.

Það er rétt, að mikið af því fé, sem sjóðurinn ávaxtar, er fé, sem verja á til gagnlegra hluta, en alveg eins og ekki er alltaf fé í ríkissjóði til að styðja öll hugsanleg fyrirtæki, þó þarfleg séu, eins verður það að byggjast á getu þjóðarinnar, hvað hún greiðir háa vexti innanlands. Það er því ekki hægt að kalla það skatt, þótt vextir þessir séu lækkaðir ofurlítið. Það er rétt, að lánþegum hefir verið gert tilboð um að lakka vextina niður í 5/2%, og á því sest, að sjóðsstjórnin skilur, að lækkun er nauðsynleg. Hér er farið fram á 1/2% lækkun til viðbótar til samræmis við önnur landbúnaðarlán.

Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að sér fyndist, að með frv. væri verið að gefa lánþegum eftir skuldir. Ekki er neitt um það í frv. 5% vextir eru alveg forsvaranlegur arður af peningaeign, og maður skyldi halda, að lækkun vaxtanna yrði til þess, að auðveldara yrði að greiða afborganir. Þessi ráðstöfun yrði því miklu fremur til að tryggja sjóðnum greiðslu á því fé, sem hann á útistandandi.

Það er rétt, að við því mætti búast, að stjórnin keypti fremur verðbréf eftirleiðis, eins og hún er nú farin að gera, heldur en að hún lánaði út á fasteignir. Þetta vitum við flm., en nú er málið af fé sjóðsins einmitt útistandandi lánum, og tilgangur frv. er einmitt sá, að fá vexti af þeim lánum lækkaða. Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að þessum lánum myndi verða sagt upp, ef frv. yrði að lögum. Þetta getur að vísu hugsazt, et sjóðsstjórnin lítur ekki á neitt annað en reikningslega hagsmuni sjóðsins. En bæði treystum við því nú, að sjóðsstjórnin liti á fleira, og auk þess á Alþingi að geta haft þetta á valdi sínu, þar sem það kýs menn í sjóðsstj. Og auðvitað er það tilgangur frv., að lánunum verði ekki sagt upp. Hitt gæti verið gott, að áskilja afborganir, eins og stjórnin hefir þegar gert.

Út af þeim ummælum hv. 1. þm. Skagf., að aðeins nokkur hluti lána sjóðsins hafi gengið til landbúnaðarins, verður að segja það, að vextirnir séu meira en nógu háir í kauptúnunum líka, enda myndi erfitt að gera þar upp á milli og hafa þær reglur um vaxtakjör, fyrir bændur og bæjarmenn. Vera má þó, að hægt sé að finna einhverja nýja leið í því máli.