16.03.1935
Efri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (1055)
52. mál, Söfnunarsjóður Íslands
Magnús Guðmundsson:
Hv. frsm. meiri hl. sagði, að það mundi vera einhver mikill ágreiningur um þetta mál, sem tæpast yrði jafnaður í umr. Ég hefi nú satt að segja ekki látið uppi mikinn ágreining við hv. frsm. um þetta mál. (BSt: N. klofnaði). Já, en það bindur mig ekki neitt, þó n. hafi klofnað, því að ég átti ekki sæti í henni. En ég get ekki annað en bent á það, að þegar á að hjálpa ákveðnum hóp manna með því að setja niður vexti, þá er á hinn bóginn hætta á því, að þessum sömu mönnum verði sagt upp þessum lánum, sem lækka átti vextina á, — og hvað vinnur maður þá? Það er vitanlegt, að þegar á að hjálpa mönnum, þá verður að búa svo um samtímis, að engin hætta sé á, að það verði þeim til ills. Það var ekki annað en þetta, sem ég var að benda á í þeim orðum, sem ég sagði áðan, og hv. frsm. viðurkenndi, að þetta gæti verið. Hann segir bara, að stjórn sjóðsins eigi ekki einungis að hugsa um hag sjóðsins; það séu fleiri tillit, sem hún eigi að taka. Ég viðurkenni það, en hún á fyrst og fremst að líta á hag þess sjóðs, sem hún er sett til að stjórna. Það er ekki hægt að neita því. Og eigi það að vera tryggt, að þetta frv. komi bændum að gagni, þá er ég ekki í vafa um, að það þarf ákvæði um, að bannað sé að segja upp þessum lánum, nema ef um veruleg vanskil er að ræða. Það er víst, að hver lánsstofnun sem er getur oft notað sér það, að lánþegi, sem er fjarverandi, verður of seinn með að senda vexti eða afborganir, og skuldabréfin gefa þá hlutaðeigandi stofnun rétt til að segja upp. Það er þess vegna á hennar valdi, hvort hún gerir það eða ekki. Þar af leiðandi er það mikið spursmál, hvort maður tekur ekki með þessu frv. meira með annari hendinni en maður gefur með hinni. — Um vextina af kaupstaðarlánum verð ég að segja það, að mér finnst mikið sanngjarnara að kveða svo á, að þeir skuli vera óbreyttir, því það eru sannarlega mikil hlunnindi, sem þessir menn hafa fengið áður með því að fá lán úr þessum sjóði, þó ekki sé farið að setja niður vextina löngu eftir að þeir tóku lánið. Eins og menn vita, verður hver maður hér Rvík, sem fær lán gegn 1. veðrétti, að borga a. m. k. 6% vöxtu. Þá sér maður, að það er engin sanngirni að lögbjóða nú, að sá maður, sem fengið hefir 51/2% lán, skuli nú ekki greiða nema 5%. — Ég segi eins og er, að mér finnst þetta frv. ekki gera Söfnunarsjóði neitt til. Ég held ekki, að menn hætti að leggja fé í Söfnunarsjóð, þó þetta frv. verði samþ., heldur mun Söfnunarsjóðurinn taka upp þá reglu að kaupa verðbréf, og þá getur hann haft meira en 6% upp úr því, en hætta lánveitingum. — Ég held þess vegna, að það séu allar líkur á því, að þó þetta frv. verði samþ., þá nái það ekki þeim tilgangi, sem því er ætlað að ná.