11.03.1935
Efri deild: 22. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í B-deild Alþingistíðinda. (1094)

35. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Pétur Magnússon:

Út af því, sem hv. 4. landsk. sagði, vildi ég aðeins bæta því við, að ég álít, að ekki geti komið til mála að setja nokkur þau ákvæði í lög, sem hægt væri að skilja á þann veg, að breytt væri þeim reglum, sem settar hafa verið um inndrátt á verðbréfum, sem þegar er búið að setja. Það væri vitanlega það allra versta, sem hægt væri að gera vegna verðbréfasölu í framtíðinni, að hræða eigendur bréfanna með því, að þeir geti átt á hættu, að sett verði lög, sem breyta skilyrðunum um inndrátt bréfanna. En það er ekki hægt að segja, að í frv. eins og það er nú séu nein ákvæði, sem leiða til þessa, því það er skýrt tekið fram í 10. gr., að „fyrir því sé séð, að útdráttur bréfa raskist ekki frá því, sem orðið hefði samkv. eldri lánstíma viðkomandi lána.“ Hitt vil ég segja, að geti verið alvarlegra, þó ekki nema komi fram á Alþingi tillögur um að breyta útdráttartímanum, og því miður var það svo í fyrra, þegar frumvarpið kom fyrst fram.

Þá vil ég aðeins bæta við nokkrum orðum út af því, sem hv. 1. þm. Eyf. sagði um möguleikana fyrir lántöku til veðdeildarbréfakaupa. Það er möguleiki fyrir því að opna nýjan veðdeildarbréfaflokk á sama hátt eins og Landsbanki Íslands hefir opnað hvern veðdeildarbréfaflokkinn ettir annan. Svo eru bréfin boðin fram á frjálsum markaði og seld fyrir það verð, sem fæst fyrir þau á hverjum tíma. Þá leið væri hægt að fara. En hver yrði afleiðingin? Vextirnir mundu fara langt upp fyrir það, sem þeir eru nú. Veðdeildarbréf Landsbankans hafa að undanförnu verið seld á 70–80%, sem þýðir það, að vextirnir verða raunverulega að meðaltali um eða yfir 7%. Það hefir verið litið svo á í stj. Búnaðarbankans, að þetta borgaði sig ekki; að það væri þó af tvennu illu betra að hætta starfseminni heldur en að landbúnaðarlánavextirnir hækkuðu frá því, sem nú er, sem allir eru sammála um, að er ofan við það, sem ætti að vera, og ofan við það, sem atvinnuvegurinn þolir.

Hitt sé ég ekki, að líkur séu til, að fremur fengist lán innanlands til þess að kaupa þessi ríkistryggðu skuldabréf fyrir, ef menn fást ekki til að kaupa bréfin sjálf. Það er ekkert annað en að fara í gegnum sjálfan sig að taka lán innanlands til þess að kaupa ríkistryggð verðbréf. Vitanlega yrði að miða lánið við útdráttartíma bréfanna. Hv. þm. var að tala um, að það væru ýmsir sjóðir í landinu, sem ættu mikið fé, en hann veit það eins vel og ég, að þessir sjóðir liggja sannarlega ekki á lausum kili. Þeir eru undantekningarlítið bundnir í útlánum, sumpart í þeim sama atvinnuvegi, sem hér er um að ræða, og sumpart í öðrum, sem ekki heldur geta svarað þeim út með stuttum fyrirvara. Ég held, að það hafi því ekki verið of mikið sagt, þó ég teldi ákvæði 2. og 3. gr. ekki annað en pappírsgagn; ég hefi ekki trú á, að þau verði annað í náinni framtíð. Tímarnir geta að vísu breytzt, svo tiltækilegt þyki að taka lán, og þá sennilega aðallega utanlands, en þá er líka alltaf hægt að setja lög þar að lútandi.