19.03.1935
Efri deild: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (1107)
35. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins
Jón Baldvinsson [óyfirl.]:
Það, sem ég vildi segja, var ekki annað en það, að ég er á móti öllum brtt. hv. 10. landsk. og hv. 2. þm. Rang., en mun fylgja till. landbn. En ég vil til viðbótar taka það fram, að ég lít dálítið öðruvísi á þetta mál en ég gerði jafnvel á síðasta þingi, en þá vannst ekki tími til að afgr. málið. Í sambandi við þetta mál hefi ég athugað möguleikana fyrir því að hækka einhvern styrk til bændanna, sem þeir fá nú, er geti komið móti þessari ívilnun. Ég ætla samt ekki að flytja neina brtt. í þá átt nú, en vil aðeins benda á það, að ef hækkað yrði hámark jarðræktarstyrks, er greiða má ábúanda, úr 300 kr., sem það er nú, og niður í 300 kr., þá mundi það svara til þess að vega móti þessum útgjaldaaukningum. Það mætti líka fara aðra leið í þessu máli, t. d. lækka hámarkið í 500 kr. eða svo, og mundu sparast við það 40–50 þús. kr. árlega. Ég vildi aðeins benda í þetta, því það getur vel farið svo, að einhverjar till. komi fram um að vega móti þessum útgjöldum, og þá getur vel verið, að þessi leið sé eins heppileg og ýmsar aðrar. En eins og ég tók fram, flyt ég enga brtt. og mun greiða frv. þessu atkv. mitt út úr deildinni.