19.03.1935
Efri deild: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (1112)

35. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Páll Hermannsson:

Ég ætla ekki að blanda mér inn í þessar umr., en af því að mér finnst þær vera farnar að snúast nokkuð að öðru en því, sem ég hélt, að hér lægi fyrir, þá vil ég lýsa því yfir, hvað ég álít, að meiningin sé með þessu frv., sem sé að gera tilraun til að hjálpa þeim, sem eiga jarðir, til þess að standa straum af þeim skuldum með því að hlaupa undir bagga með vexti af lánunum. En nú er hér komin fram till. um það, hvernig eigi að hjálpa mönnum til að verða sjálfseignarbændur, og ég verð að segja, að mér finnst sú till. ekkert koma þessu máli við. Með henni virðist mér, að sé verið að marka þá stefnu, sem menn eigi að fara eftir í þessu máli í framtíðinni, en ég álít, að því eigi ekki að blanda saman við það mál, sem hér liggur fyrir. Hv. flm. till. segir, að þeir, sem álíti sjálfsábúð heppilegri en leiguábúð, muni greiða þessari till. atkv. En mér skilst, að hér hafi ekki verið að ræða um slíkt, hvora stefnuna menn vilji aðhyllast. Ég mun því greiða atkv. á móti till., af því að mér finnst hún ekki koma þessu máli við.

En hér liggja fyrir brtt., sem virkilega snerta málið, frá hv. 10. landsk., og reyndar frá hv. 2. þm. Rang líka, að létta ögn betur undir með bændum með vaxtabyrðina en frv. gerir ráð fyrir. Hv. 10. landsk. sagði, að landbúnaðurinn þyldi ekki meira en 4–41/2% ársvexti. Það er vitanlega alveg rétt, og ég býst meira að segja við, að hann þoli ekki einu sinni svo mikið. Ég efast um, að það væri nægilegt að færa vextina niður í 4% ef ætti eingöngu að ganga út frá því, hvað landbúnaðurinn þyldi. En ég býst við, að hér verði að líta á fleira en þörfina eina saman; ég hygg, að eitthvað verði að líta til getunnar líka.

Það hefir verið bent á það áður, að þegar Alþingi — 1933 ætla ég, að það hafi verið — var að ákveða að hlaupa undir bagga með vaxtabyrði landbúnaðarins, svo að vextir yrðu ekki hærri en 41/2%, þá hafi staðið öðruvísi á fyrir hinum aðalatvinnuveginum. Mér þykir nú eftir atvikum býsna gott, ef við getum til lengdar haldið vöxtunum af landbúnaðarlánum í 5%. Mér hefir skilizt, að einhversstaðar þyrfti ríkissjóður að taka peninga til að standast þetta. Ég hefi litið svo á, að þeir peningar, sem þyrftu til hjálpar landbúnaðinum, þyrftu að koma frá sjávarútveginum. En nú er það vafamál, hvort sjávarútvegurinn er nokkuð betur staddur en landbúnaðurinn. Ég man ekki betur en að í skýrslum, sem lagðar hafa verið fyrir Alþingi — það mun hafa verið árið 1933 — hafi verið talið, að það ár hafi verið 125% tap hjá sjávarútveginum. Þegar ástandið er nú svona, þá held eg, að sé vafasamt að gera mjög háar kröfur, þó að þær út af fyrir sig kunni að vera réttmætar, ef litið er á þörfina eina saman. Ég býst við, að í nánustu framtíð verði það svo, að menn verði nauðugur viljugir að taka fyrst og fremst tillit til líðandi stundar. Og þá verður fyrst og fremst að líta á það hjá landbúnaðinum, að menn geti lifað við hann og verði ekki flæmdir af jörðum sínum. Það verður fyrst og fremst að sjá fyrir því, að menn fái það verð fyrir framleiðslu sína, að þeir geti lifað, og að skuldirnar verði ekki til þess, að menn verði að hrekjast frá jörðunum. Nú er lagt fram fé landbúnaðinum til hjálpar frá þessum tveimur sjónarmiðum, en svo fær hann líka fé, sem er lagt í lófa framtíðarinnar. Ég man ekki, hve mikill jarðræktarstyrkurinn er nú orðinn. Mig minnir 3/4 millj. Mér þykir rætast betur úr en á horfist, ef við getum staðið við að veita landbúnaðinum alla þá hjálp, sem við höfum nú lofað, þó að við sættum okkur við að hafa vextina 5%. (MG: Hverjir við?) Alþingi, því að það hefir samþ. að veita þessa hjálp, og hv. 1. þm. Skagf. líka, og ef við getum staðið við það, þá kalla ég, að fari betur en horfist. En færi svo, að við gætum ekki staðið við það allt, þá gæti farið svo, að yrði að ráðast harkalega á ýmsa þá liði, sem nú eru ætlaðir landbúnaðinum til styrktar, þar á meðal suma þá liði, sem hv. 10. landsk. óskar nú eftir að hækka, þar á meðal suma liði jarðræktarstyrksins. Það væri því ákaflega æskilegt. ef hv. 10. landsk. gæti bent á einhverja leið til að geta hvorttveggja, staðið við þau gefnu loforð og einnig uppfyllt þær óskir, sem hann kemur nú með og sjálfsagt væri að uppfylla, ef hægt væri. Það væri gaman, ef hann vildi lýsa því nánar, hvernig hann hugsar sér að leysa þetta mál.

Hér var til umr. í gær mál, sem snerti landbúnaðinn. Það var um lán úr söfnunarsjóði. Mér skildist þá á ýmsum mönnum, að þeir töldu óréttmætt að lækka vexti þeirra manna, sem eiga peninga, sem eru í útlánum. Ég tel, að ef sú leið væri farin, þá yrði hún drýgri en hin, að byggja eingöngu á þeirri von, að ríkissjóður endist endalaust.