19.03.1935
Efri deild: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (1113)
35. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins
Þorsteinn Briem [óyfirl.]:
Það má segja nú eins og oft áður, að úr því formaður Alþfl., hv. 4. landsk., hefir talað, þá þýðir ekki að hafa mörg orð, því að þá munu forlög Kartagóborgar vera ákveðin í þessu máli sem öðrum, og er því víst réttast að auka ekki skrifurum eða prenturum ómak með því að tala langt mál.
Hv. 1. þm. N.-M. talaði um, að það væri vafasamt, hvort landbúnaðurinn gæti staðið undir 4–41/2% fasteignaveðslánum. Hann talaði sanngjarnlega um það mál. eins og hans var von og vísa, en þó að hann vildi ekki slaka til í þessu atriði, þá gaf hann, að því er mér skildist, loforð um að sjá fyrir því, að menn gætu fengið fyrir afurðir sínar það verð, sem þyrfti til þess að atvinnuvegurinn gæti borið sig. (PHerm: Það loforð gaf ég ekki). Það fannst mér þó hann gera, að það væri það, sem hans flokkur ætlaði að beita sér fyrir, og er gott að heyra, ef eitthvað á að gera til þess, að bændur fái hærra verð fyrir afurðir sínar en á síðasta ári. Mundu menn þá við una, þó að ekki fengist lagfæring á öðrum hlutum, ef því máli væri vel í höfn komið, og þá mundu bændur síður kvarta undan öðrum byrðum, og ég fyrir mitt leyti mundi ekki gera kröfur, ef ég sæi, að þeir fengju það verð, sem þyrfti til þess að atvinnuvegurinn gæti borið sig.
Hv. þm. var að tala um söfnunarsjóð í þessu sambandi. Ég hygg, að ekki hafi verið hægt að misskilja orð mín í því sambandi, þegar um þetta mál var rætt í gær, að ég ætlaðist ekki til, að bændur greiddu hærri vexti fyrir það, þótt það vaxtatillag, sem ég ætlaðist til að greitt væri, væri ekki tekið af þeim, sem væru í milli húsgangs og bjargálna, og þó nær sveitinni, og það er vitað, að það eru slíkir aðiljar, sem eiga mestan hluta söfnunarsjóðs. Ég ætlast til, að þessi styrkur verði heldur tekinn af þeim, sem breiðari hafa bökin, með vaxatillagi úr ríkissjóði.
Hv. 4. landsk. var að tala um, að til þess að geta lækkað vextina þyrfti að lækka jarðræktarstyrkinn, og mér fannst hv. 1. þm. N.-M. einnig ympra á þessu atriði, en þeir fóru, að því er mig minnir, ekki nákvæmlega út í það atriði.
Ég heyrði, að hv. 1. þm. N.-M. gerði ráð fyrir, að jarðræktarstyrkurinn væri nú 3/4 millj. Ég held, að þótt mín till. yrði samþ., þá væri óhætt að sætta sig við það framlag, en ekki þurfa þar við neina viðbót. Síðasta ár var styrkurinn 457000 kr., ef ekki er talin með sú uppbót, sem fer til jarðafarafgjalds af þjóðjörðum.
Hv. þm. talaði mikið um það, að sjá þyrfti fyrir tekjum á móti þessum útgjöldum; það væri ekki nóg að heimta þetta, — það yrði að skaffa fé. En það er ekki allt fengið með því að skaffa nýjar tekjur; það má líka komast að sama marki með því að lækka útgjöld. Ég held, að þessi hv. þm. hafi verið með hækkunartill. í fjárl., sem hafa ekki verið eins nauðsynlegar fyrir atvinnulífið eins og þessi jarðræktarstyrkur og vaxtatillag. Ég get nefnt sem dæmi eitt mál, sem liggur nærri honum sjálfum. Það er af hans eigin heimili; það er framlag til rafveitu á Eiðum. Þó að það sé mjög lofsamlegt fyrirtæki, sem menn mundu verða mjög sammála um að leggja í á góðu ári, þá verð ég að líta svo á, að jafnvel þó að það sé mjög æskilegt að fá ljós og hita frá rafmagni, þá sé samt ódýrara í bili að afla þess á annan hátt, og atvinnulífinu sé jafnvel betur borgið með því að lækka veiti og auka jarðræktarstyrk en að leggja það fé í rafveitu. Þannig má tala um fleira þessu líkt.
Hæstv. forsrh. talaði nokkuð á líka lund og hann gerði svo oft á síðasta þingi, en minna hefir borið á á þessu þingi. Það kenndi allmikils yfirlætis í orðum hans, og skal ég ekki gera tilraun til að svara honum í sama tón. Hann vék að því, að árið 1933 hefði staðið öðruvísi á fyrir sjávarútveginum en nú, og þó hefði ekki komið fram nein ósk um vaxtalækkun fyrir þann atvinnuveg. Ég hygg þó, að á árinu 1933 hafi verið samþ. þál. um að rannsaka hag sjávarútvegsins, og bak við flutning þeirrar till. hefir þó legið sú ósk, ef ekki krafa, að hlaupa undir bagga með sjávarútveginum líka, þrátt fyrir það, að sú ósk lægi fyrir og þótt menn gætu rennt grun í það, að svo væri ástatt um þennan atvinnuveg sem skýrslur hafa síðar leitt í ljós. Og á þinginu 1933 var samþ. að veita ríflegra vaxatillag til landbúnaðarins en farið er fram á með þessu frv. Og þar sem hæstv. forsrh. er að tala um skrum í þessu efni, vísa ég því algerlega á bug, því að þetta var framkvæmt á árinu 1933, og það var gert meira en að láta sitja við orðin tóm.
Hæstv. ráðh. sagði líka, að þyrfti að skaffa tekjur í þessu efni. Þar get ég svarað honum á líka lund og hv. þm. N.-M., að það munu verða bornar fram till. til lækkunar á fjárl., þegar þar að kemur, og hygg ég, að það kæmi í sama stað niður og þó að aflað væri nýrra tekna. Og það get ég þegar tekið fram, að þær till., sem ég og á á flokkur, sem ég stend að, mun bera fram. þær munu ekki ganga í sömu átt og hjá hv. 4. landsk., að lækka jarðræktarstyrkinn.