30.03.1935
Neðri deild: 41. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (1130)
35. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins
Gísli Guðmundsson:
Hv. þm. Mýr. gekk inn á, að það væri rétt, sem ég hélt fram, að í lögum þessum væri miðað við hámark lánstíma, og stjórn ræktunarsjóðsins væri ekki skylt að veita öll lán til lengsta tíma.
Annars þarf ég ekki miklu að svara hv. þm. Ég vil aðeins endurtaka það, að ég a. m. k. lít svo á, að brtt. mín, sem hér er um að ræða á l. um fasteignaveðslán landbúnaðarins, sé hliðstæð ýmsri annari hjálp, sem landbúnaðinum hefir verið veitt, án þess nákvæmlega hafi verið út í það farið að þræða eingöngu venjuleg sjónarmið lánastarfs.
Það er rétt, að ýmsar rafveitur hafa orðið dýrar, m. a. vegna þess, að menn hafa ekki átt kost á faglegum leiðbeiningum og aðstoð hins opinbera. En einmitt vegna þess að þær hafa orðið svona dýrar, er ýmsum bændum erfitt og illkleift að standa undir þeim —, og einmitt meiri þörf að rétta þeim hjálparhönd. En hvað hefir hv. landbn. hugsað sér í þeim efnum? Ég vil svo að lokum beina þeirri fyrirspurn til hv. form. landbn., hvort nefndin muni ekki sjá sér fært að fylgja því, ef ég ber fram skrifl. brtt. við brtt. mína, á þá lund, að í stað 20 ár komi 15 ár.