26.11.1935
Neðri deild: 83. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2418 í B-deild Alþingistíðinda. (115)
Afgreiðsla þingmála
Forseti (JörB):
Ég veit til þess, að hv. landbn. þessarar deildar hefir haft mörgum störfum að sinna á þessum hluta þingsins og að þannig er ástatt, að hún vinnur að málum, sem fram hafa verið borin fyrr en þessi tvö mál, sem hér um ræðir. Hinsvegar hefi ég áður látið í ljós þá skoðun, að hvað sem líður afstöðu n. til einstakra mála, þá er það á allan hátt sjálfsagt, að málin verði afgr. til deilda, svo að þær geti skorið úr um tilverurétt málanna. Vil ég nú vænta þess, að þessir tveir hv. þm., sem hér hafa kallað eftir málum, láti sér að þessu sinni lynda ummæli hv. þm. Mýr. í þessu efni, þar sem hann hefir lýst yfir því, að n. muni, svo fljótt sem auðið er, afgreiða þessi tvö mál. Eins og nú er ástatt í þessu efni, finnst mér hv. n. enn átölulaus að því er snertir afgreiðslu þessara mála.