18.03.1935
Neðri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í B-deild Alþingistíðinda. (1161)
76. mál, flutningur á kartöflum
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Ég vil fara nokkrum orðum um brtt. þær, sem fram hafa komið við frv. Ég skal þá taka það fram fyrir hönd n., að hún álítur, að þær myndu flestar verða til spillis á frv., og sumar eyðiðleggja það alveg, ef samþ. yrðu.
Ég kem þá fyrst að brtt. á þskj. 151 frá hv. þm. Borgf. Ég skal skjóta því fram, áður en ég kem að hinum einstöku brtt., að það var rangt hjá mér, að hv. þm. Borgf. vildi fella niður ákvæðið um heimildina í frv. Hann vill aðeins taka fyrir innflutninginn, þegar nægar birgðir eru fyrir í landinu. Það má kannske segja, að þetta sé ekki stórt atriði. En það, sem vakti fyrir n., var, að heimild væri til þess að flytja inn kartöflur einhversstaðar á landinu. Eins og kunnugt er, er kartöfluframleiðslan misjöfn víða á landinu, því þó að framleiðslan sé nægileg t. d. á Suður- og Vesturlandi, þá geta verið aðrir staðir, þar sem hún er ekki nægileg. Það er því eðlilegt að flytja á þá staði þegar á haustin, því það er kostnaðarsamara að flytja fyrst á einhvern annan stað, og svo á hina staðina síðar. Þó að það sé bannað að flytja vöruna á ýmsa staði, þá er heimilt að leyfa að flytja hana á staði, þar sem ræktunin er ekki nægileg, en fyrir það er girt, ef brtt. hv. þm. Borgf. yrði samþ.
Þá er ákvæðið, sem hann vill fella niður. Það gæti komið til mála að fella það niður, ef brtt. frá hv. þm. Vestm. yrði samþ. En það er sú eina brtt., sem ég vildi mæla með, að væri samþ., og í sambandi við hana vildi ég mælast til, að samþ. væri a-liður 1. brtt. frá hv. þm. V.-Húnv. Ef sú till. næði því að verða samþ., þá væri heimilt að setja á hámarksverð. Þá væri líka rétt að fella niður síðari málsgr. 1. gr. í frv., þar sem sama vakir fyrir hvorutveggja. En ég legg ekki svo mikla áherzlu á, að nauðsynlegt sé að gera ráðstafanir til þess að hamla upp á móti verðhækkun á innlendum kartöflum. Ég hefi bent á það áður, að meginhluti þeirra kemur á markaðinn á sama tíma, og því litlar líkur til þess, að verðið hækki. En ég vil gera þetta til samkomulags við þá menn, sem óttast verðhækkun og vilja tryggja það með l., að neytendurnir þurfi ekki að sæta verðhækkun á vörunni. Ég vil því leggja til, að brtt. frá hv. þm. Vestm. og a-liður 1. brtt. hv. þm. V.-Húnv. verði samþ.
Þá kem ég aftur að brtt. frá hv. þm. Borgf. — Þá er það brtt. við 3. gr. frv. Hann vill láta fella hana alveg niður eins og hún er frá hendi n., en í staðinn vill hann láta koma ákvæði um, að landbrh. sé heimilt með reglugerð að setja hámarksverð á innlendar kartöflur. Ákvæði í 1. gr. frv. er sama eðlis og þetta, sem tryggja á með þessari brtt. við 3. gr., en það er að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir okur. En ef till. frá hv. þm. Vestm. verður samþ., þá er ekki ástæða til þess að samþ. þessa brtt. Það, sem ég vil helzt setja út á hana, er, að með henni á að fella niður þann vísi til mats, sem nú er í frv. Það var mjög rætt um þau í n., hvort ekki skyldi koma með fyllri ákvæði um mat á innlendum kartöflum, því það, sem helzt getur orðið til þess að auka söluna, er trygging fyrir því, að vara sú, sem á boðstólum er, sé góð. Í frv. er ekki gert ráð fyrir öðru en vísi til mats, þar sem gert er ráð fyrir, að gefin skuli út reglugerð um það, hvernig varan eigi að vera til þess að hún geti talizt boðleg. Svo er og ákvæði um að setja upprunamerki á allar kartöflur, nema þær, sem seldar eru beint til neytenda, og er með því settur spori á innlenda framleiðendur til þess að gera sér far um að auka álit og útgengilegleika vörunnar. (PO: Þetta er misskilningur hjá hv. þm., því það er aðeins ákvæðið um sektina, sem ég vil fella niður). Ég býst við, að þetta sé rétt hjá hv. þm. og bið hann afsökunar á þessum misskilningi.
Þá er það ákvæðið um að fella niður sektina og orða þetta í einu lagi. Við gerðum ráð fyrir mismunandi háum sektum, eftir því hvort um væri að ræða lögin eða reglugerðina, og lögðum við lægri sekt fyrir brot á reglugerðinni. Ég verð að halda því fram, að þessi brtt. myndi verða til skaða á frv., ef hún væri samþ. Það er rétt að hafa flokkun á þessu og setja önnur ákvæði um sekt fyrir brot á reglugerðinni en l.
Þá skal ég víkja að brtt. á þskj. 174, frá hv. þm. V.-Húnv. Ég hefi rætt um a-lið 1. brtt. og get lagt til, að hann verði samþ., ef till. frá hv. þm. Vestm. nær samþykki. Þá kem ég að b-lið 1. brtt., sem er um það, að síðari málsgr. 1. gr. frv. orðist þannig: „Innflutningsleyfum á kartöflum skal úthluta í réttum hlutföllum við það magn af innlendum kartöflum af síðasta árs framleiðslu, sem hlutaðeigandi innflytjendur hafa haft til sölumeðferðar á hverjum stað“. Þetta er strangari orðun á samskonar hugsun og kemur fram í frv. n., og tel ég réttara að samþ. frekar till. n., því það er ekki hægt að fylgja þessu ákvæði út í æsar. Við skulum t. d. segja, að beiðni um innflutning á kartöflum komi frá 2 stöðum, önnur úr Rvík, en hin frá Þórshöfn. Þá má vitanlega gera ráð fyrir, ef hlutfallstalan ein á að gilda, að þá sé það sama sem ekkert, sem manninum á Þórshöfn er heimilt að flytja inn á móts við þann, sem er í Rvík, en það er ekki þar með sagt, að hann þurfi hlutfallslega jafnt og sá í Rvík. Svona smáagnúar heflast frekar af, ef gr. er orðuð eins og n. leggur til. En það er auðvitað hið sama, sem vakir fyrir báðum.
Þá er það 2. brtt. frá hv. þm. V.-Húnv., sem er um það, að ný grein komi aftan við 4. gr., svo hljóðandi. „Leggja skal sérstakt gjald á allar innfluttar kartöflur, sem nemi 1 kr. á hverja tunnu, og rennur það í sjóð, sem nefnist garðræktarsjóður. Skal honum varið til þess að greiða framleiðendum, samkv. tillögum Búnaðarfél. Ísl., allt að kr. 3 fyrir hverja tunnu af kartöflum, sem framleiddar eru til sölu út úr héraðinu. Búnaðarfél. Ísl. hefir stjórn sjóðsins með höndum, og skal hann ávaxtaður í Búnaðarbanka Íslands“.
Ég get að vissu leyti verið sammála hv. þm. í því, að rétt væri að taka tillit til þess, að allar þjóðir eru að leggja tolla á aðfluttar vörur, og gæti auðvitað það, að leggja toll á erlendar kartöflur, orðið til styrktar innlendri framleiðslu. En ég býst við, að ef þetta væri samþ. núna, þá myndi það frekar verða til þess að hamla málinu, og legg ég því til, að beðið sé með það.
Ég er honum ósammála, þar sem hann vill verja gjaldinu eingöngu til styrktar þeim, sem selja út úr héraði. Þá gætu menn haft hagnað af því að selja allar kartöflur sínar út úr héraði og kaupa svo aftur kartöflur til heimilisnota, því þá fengju menn 3 kr. á hverja tunnu. Gætu menn þannig keypt kartöflur fyrir 3 kr. minna verð en það, sem þeir fengju fyrir kartöflurnar, sem þeir seldu út úr héraði. Það gæti verið hagur að þessu, því flutningskostnaðurinn myndi ekki í öllum tilfellum éta upp þetta gjald. Ég vil með þessu benda á möguleika til þess að nota þetta öðruvísi en ætlað er.
Þá kem ég síðast að till. frá nokkrum hv. þdm., og er sú till. á þskj. 146 og er á þá leið, að aftan við 4. gr. bætist: „Landbúnaðarráðherra er heimilt að greiða kartöfluframleiðendum, er búa í 43 km. fjarlægð eða meira frá neyzlustað (sölustað) og flytja vöruna landveg þangað, allt að kr. 3.00 styrk úr ríkissjóði á hverja flutta tunnu“.
Ég get sagt, að n. er á móti þessu ákvæði, vegna þess ósamræmis, sem í því felst. N. hefir aflað sér upplýsinga um það, hvernig þessu er háttað hér á Suðurlandi Hér er hægt að fá 2 tonna bíl til þess að fara 100 km. frá Rvík fyrir 48 kr. Með þeim kjörum verður flutningskostnaðurinn 24 kr. á tonnið, ef bíllinn flytur ekkert aðra leiðina. En ef hann hefir flutning báðar leiðir, þá er kostnaðurinn 12 kr. á tonn. Það er vitanlegt, að þó að till. landbn. verði samþ. þá er ekki unnt að koma flutningsgjaldinu á kartöflum, sem fluttar eru sjóveg, niður úr 23 —30 kr. á tonn. Og þegar þar við bætast svo landflutningar, kannske svo tugum km. skiptir, þá er ekkert réttlæti í því að ætla sér að borga til fulls flutningskostnaðinn fyrir nokkra framleiðendur. Ég skal geta þess, að flutningskostnaðurinn úr Borgarfirði mun vera um 30 kr. á tonn, þegar flutt er sjóleiðis. Þar við bætist svo kostnaður við að koma vörunni að sjónum. Ég sé því ekki, að nokkurt samræmi sé í þessari till. og till. n.
Það er líka annað, sem menn verða að leggja áherzlu á, þegar verið er að reyna að greiða fyrir innlendri kartöfluframleiðslu, og það er að reyna að stuðla að því, að framleitt sé þar, sem bezt hagar til, bæði hvað flutning og annað snertir. Þó að það megi með góðum árangri framleiða kartöflur uppskerunnar vegna uppi í miðju landi, þá er ekki rétt að rækta þær þar, sem svo hagar til, að flutningskostnaðurinn er meiri en það, að kartöflurnar borgi hann. Þess vegna verður aðstaðan að ráða, hvar varan er framleidd í landinu, og verður það þá vitanlega gert þar, sem framleiðsluskilyrði og flutningsmöguleikar eru beztir. En þessu lögmáli er kippt úr skorðum með því að leggja kvaðir á ríkið um að koma vörunni á markað þaðan sem flutningurinn raunverulega svarar ekki kostnaði og verður jafnvel meiri en verðmæti vörunnar. Hitt er annað mál, þó létt sé undir um flutninga eins og frv. gerir ráð fyrir, enda kostar það ekki beina útborgun úr ríkissjóði, en jafnar þó að nokkru leyti aðstöðumuninn.
Ég hefi þá sýnt fram á, að heppilegast muni vera að fella allar brtt., sem fram hafa komið við frv., því þær eru allar beint eða óbeint til skemmda. Og ef hrúga á inn mörgum vafasömum brtt., eru litlar líkur til, að frv. verði afgr. á þessu stutta þingi. Ég vil því beina því til hæstv. forseta, hvort ekki muni vera rétt að taka málið af dagskrá til morguns, svo þm. geti áttað sig á þeim breyt., sem fram eru komnar og sumar hafa ekki komið fram fyrr en nú á síðustu stundu. Ég býst við, að landbn. geti fallizt á þetta.