19.03.1935
Neðri deild: 32. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (1168)

76. mál, flutningur á kartöflum

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Landbn. hefir nú haft þetta mál til meðferðar síðan í gær og tekið út nokkrar af þeim brtt., sem liggja fyrir, og borið þær fram á sérstöku þskj., 199. Landbn. hefir fallizt á fyrri stafl. a. í brtt. minni. Ég get því gjarnan tekið hana aftur, úr því að landbn. hefir óskað eftir að setja á sérstakt þskj. till., sem hún vill bera fram.

En út af b-lið brtt., við seinni málsgr. 1. gr., verð ég að taka fram nokkur atriði, sem frsm. landbn. hefir auðsjáanlega misskilið í gær. Till. er um það, hvernig skuli úthluta innflutningsleyfum til þeirra, sem verzla með kartöflur. Eins og hv. þdm. hafa tekið eftir, er till. mín ákveðnari heldur en gr. eins og hún er frá landbn. Ég vil láta einskorða innflutningsleyfi við það vörumagn, sem innflytjendur hafa af innlendum kartöflum til sölu á hverjum stað. (JJós: Hver á að segja til um það?). Það liggur nokkurn veginn fyrir, hvað menn hafa til sölu af innlendri framleiðslu, og það er óskaplega auðvelt að fá upplýsingar um það efni.

Hv. frsm. landbn. misskildi ákvæði þessarar brtt. minnar, því að hann hélt, að lagður yrði til grundvallar hinn mismunandi innflutningur á hinum ýmsu stöðum, og tók þar til samanburðar Þórshöfn og Reykjavík. En nú er það ekki innflutningur á þessum tveimur stöðum eða sala á innlendum kartöflum, sem ákveður hlutfallið á milli innflutnings hjá þessum tveimur mönnum, sem við hugsum að verzli í Reykjavík og Þórshöfn, heldur sölumagnið hjá þeim út af fyrir sig á hvorum staðnum. Ég skal að vísu játa, að ég legg ekki neitt afarsterka áherzlu á þetta atriði, en þó tel ég rétt að hafa þetta eins og ég hefi lagt til.

En hin brtt., á þskj. 174, er svo þýðingarmikil, að ég álít hana undir engum kringumstæðum mega falla niður, — sérstaklega þar sem landbn. leggur nú til, að 4. gr. frv. verði felld burt, þar sem skylduákvæði er gagnvart skipaútgerð ríkisins, að skipaútgerðin flytji kartöflurnar milli hafna fyrir hálft gjald. Þar sem þessi gr. á að falla niður, sé ég ekki annað en að nauðsyn beri til að taka upp ákvæði eins og í 2. brtt. felast. Og ég skal segja hv. þm. það, sem ógjarnan vilja einkasölu á kartöflum og er heldur ekki geðfellt að fá þetta ákvæði, að ef þetta verður fellt, þá kemur einkasala — og það áður en langt líður, og þá eru þeir komnir í það verra fenið — eftir þeirra eigin skoðun.

Hér er að tala um lítilfjörlegt gjald á innfluttar kartöflur, sem nemur 1 kr. á hverja tunnu og á að verja til framleiðanda, svo að það verki eins og flutningsstyrkur myndi gera. Ég hefi verið að athuga lítils háttar um innflutning á kartöflum og framleiðslu í landinu sjálfu. Og það er sýnilegt eftir þeim skýrslum, sem fyrir liggja síðan 1920, að telja má, að á seinni árum — síðan 1928 — hefir neyzlan í landinu verið rúmar 60 þús. tunnur, og af því verið flutt inn um 20 þús. tunnur og upp í 23 þús. Hitt er framleiðsla í landinu sjálfu; eða um 35—40 þús. tunnur árlega. Nú er ekki gott að segja, hvað mikið af þessari innlendu framleiðslu kemur á sölumarkað, en sennilegast þykir mér eftir skýrslunum, að það sé ekki meira en 10 þús. tunnur; getur verið, að það sé minna. Framleiðendur sjálfir hafa mikinn meiri hl. til heimanotkunar hjá sér. Mundi því einnar kr. gjald á tunnu nema 2—3 kr. á hverja tunnu, sem látin er til sölumeðferðar, eins og sakir standa. En eftir þessum skýrslum mundi 40—30% aukning á framleiðslunni vera nægilegt til að fullnægja þörfinni.

Þegar þessi mikli gjaldeyrisskortur á sér nú stað, þá er ekki alveg ástæðulaust að reyna að fyrirbyggja, að út úr landinu fari mikið á hundrað þús. kr. árlega fyrir vöru, sem hægt er að framleiða í landinu sjálfu, og kannske ekki miklu dýrari en við verðum — a. m. k. síðastl. ár — að sækja þær til annara landa, sem ekki eru hagstæð að því er verðlag snertir, vegna gjaldeyrishamla, sem gerðar voru, og samninga. m. a. við Þýzkaland. Ég verð því að leggja mjög ríka áherzlu á það, að 2. till. verði samþ. Og ég hygg, að a. m. k. þeir þm. Árn., Rang. og V.-Skaft., sem hafa borið fram hér brtt., en hafa nú að ég hygg gengið inn á að taka hana aftur samkv. till. landbn., — ég hygg að þeir og aðrir, sem vilja styðja á þann hátt, sem þeir hugðust með till. sinni, framleiðslu bænda á Suðurlandi, geti ekki gengið á móti till. eins og þessari, sem mundi verka a. m. k. eins mikið til stuðnings við kartöfluframleiðslu á þessu svæði eins og þeirra till. gerir. Og ég verð að leggja alveg sérstaka áherzlu á það við þá þm., sem vilja umfram allt losna við einkasölu á kartöflum, að þetta er eina leiðin til þess að aftra einkasölu. Ég fyrir mitt leyti er ekki neitt sérstaklega sólginn í að fá einkasölu á kartöflum. En mér sýnist vera alveg nauðsynlegt að gera einhverjar róttzkar ráðstafanir til þess að hindra, að innflutningur þurfi að eiga sér stað á þessari vöru, sem vel er hægt að framleiða í landinu sjálfu, bæði vegna hagsmuna framleiðenda sjálfra og ekki síður vegna hagsmuna þjóðarheildarinnar. Því að nú verður ekki séð fram úr, hvernig eigi að fullnægja þörf þjóðarinnar fyrir erlenda „valútu“, — virðist allt vera að komast þar í strand.

Af þessum tvíþættu ástæðum vænti ég, að hv. þdm. fallist á að samþ. tilh, því að eins og ég hefi þegar tekið fram, ef það er ekki gert og 4. gr. verður felld úr frv., eins og landbn. leggur til, þá er ekkert annað orðið eftir af frv. en samskonar ákvæði og gilt hafa með ákvörðun, sem innflutningsnefnd hefir tekið og starfað eftir á s. l. ári. Ég vil því leggja alveg sérstaka áherzlu á það, að 2. brtt. á þskj. 174 nái samþykki.