19.03.1935
Neðri deild: 32. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 807 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)

76. mál, flutningur á kartöflum

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Ég skal ekki vera margorður, svo að hægt sé að koma málinn af fyrir fundarhlé.

Ég vil vekja athygli hv. þd. á, að landbn. á brtt. á þskj. 199. í þeim er ekkert nýtt, því að þær eru allar bornar fram áður, en n. þótti rétt, eftir að hún hafði átt viðtal við flm. hinna till., að setja þær till. saman á eitt þskj., sem n. var nokkurn veginn sammála um ásamt flm., og taka aftur að öllu eða mestu leyti aðrar þær till., sem lágn fyrir í gær.

Þær till., sem n. varð sammála um að flytja, er þá fyrst till. frá hv. þm. V.-Húnv. um að fella niður þann lið í frv. n., sem átti að vera til að tryggja, að verð á kartöflum yrði ekki óhæfilega hátt við bann það, sem 1. gr. gerir ráð fyrir. En aftur á móti er lagt til að samþ. till. hv. þm. Borgf. um það, að landbúnaðarráðherra sé heimilt með reglugerð að setja hámarksákvæði um verð á innlendum kartöflum, til þess að ná sama takmarki.

Þess ber að geta, að 3. brtt., við 4. gr., er raunar ný brtt., að sú gr. falli burt. Það er ákvæðið um að skylda ríkisskipin til að flytja kartöflur kringum landið fyrir hálft flutningsgjald. Sú till. varð ástæða til þess, að nokkrir um. komu fram með till. um flutningsstyrk á landi, sem n. gat nú ekki fallizt á, því að hún var nokkurn veginn sannfærð um, að það hefði orðið frv. að falli eða það hefði dagað uppi, alveg á sama hátt og samskonar ákvæði urðu áður þessu máli að tjóni. Þess vegna varð samkomulag við flm. að þessari till. um flutningastyrk á landi, að fella gr. burt gegn því, að þeir taki sína till. aftur. Og þá er lokið því mesta ágreiningsefni við þessar umr.

Hv. þm. V.-Húnv. getur ekki fallizt á að taka sína till. aftur, eins og hv. þm. hafa heyrt; og leggur hann sérstaka áherzlu á að halda fast við 2. gr. brtt. sinna, um það, að leggja sérstakt gjald á útlendar kartöflur til styrktar innlendri framleiðslu. Ég gat þess við umr. í gær, og get gert ennþá, að í sjálfu sér er ég að ýmsu leyti hlyntur þessari hugmynd og mundi vilja fylgja henni í annari mynd. En ég vil ógjarnan binda hana við þetta mál, af hræðslu við það, að þetta gæti orðið til að sigla öllu málinu í strand. Hinsvegar vil ég bjóða hv. þm. að bera fram sérstakt frv. um þetta atriði, sérstakan garðyrkjusjóð, sem ekki þyrfti að vera áhangandi þessu frv. og ekki eiga framlag sitt undir því. (HannJ: Getur þm. tryggt því framgang?) ég mun leggja fram mitt lið, en vil ekki setja allt þetta mál í hættu. Hinu neita ég, sem hv. þm. V.-Húnv. hélt fram, að ekkert væri nýtilegt eftir af frv., ef 4. gr. er felld niður. Fyrst er þess að geta, að það eru ákvæði í l. til tryggingar því, að ekki séu fluttar inn kartöflur, þegar nóg er fyrir. Og þó að þm. vænti, að innflutningsn. muni gera það, þá er samt sá munur á, að þegar þetta er orðið að l., er það alþjóð kunnugt, hver ákvörðun tekin er á þingi. Menn geta þess vegna óhikað lagt í að framleiða kartöflur í stærri stíl, með því að eiga nokkurn veginn tryggan markað að haustinu.

Annað ákvæði á líka að tryggja meiri eftirspurn eftir innlendum kartöflum að haustinu en ella, en það er um að binda innflutningsleyfi því skilyrði, að menn hafi verzlað í stórum stíl með innlendar kartöflur. Ennfremur er ákvæði um það, að Búnaðarfél. Ísl. hafi til allskýrar skýrslur um það, hvað mikið sé til af kartöflum á hverjum tíma; og það er stórt spor í þá átt, sem hér stefnir í.

Í þriðja lagi er vísir til kartöflumats, sem ekki er til nú. En það er eitt af undirstöðuatriðum þess, að efla eftirspurn eftir íslenzkum kartöflum. Því meiri trygging er fyrir því, að um góða og í alla staði boðlega vöru sé að ræða. En ég fer ekki lengra út í það mál, en vænti, að hv. deild sjái sér fært að samþ. brtt., sem n. er sammála um að flytja, og svo frv. sjálft, til þess að það verði að l. á þessum hluta þings.