01.04.1935
Efri deild: 39. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (1193)

76. mál, flutningur á kartöflum

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég gerði grein fyrir þeim brtt., sem ég flyt hér, við 2. umr. og þarf því ekki að endurtaka þau rök mín hér. Ég hefi með brtt. viljað bæta því inn í frv., sem ég tel mestu varða, að eftirlit verði haft með vörugæðum og að innflutningur verði ekki takmarkaður meðan vöntun er á kartöflum í landinu. Hinsvegar er ég alveg sömu skoðunar og fylgismenn frv. um það, að okkur ber að keppa að því að verða sjálfum okkur nógir í þessu efni. En vegna þess, að ég býst við, að það eigi nokkuð langt í land, hefi ég með brtt. mínum viljað koma í veg fyrir, að vöntun geti orðið á þessari vöru í landinu eða léleg vara sé höfð á boðstólum. Ég mun því ekki treystast til að greiða frv. atkv. mitt, ef brtt. mínar verða felldar.