02.03.1935
Efri deild: 15. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (1197)

31. mál, sparisjóðir

Flm. (Bernharð Stefánsson):

Með þessu frv. er í fyrsta lagi lagt til, að gerðar verði nokkrar breyt. á sparisjóðsl. frá 1915. Í öðru lagi er lagt til að gera nokkurn viðauka við þau, um eftirlit með sparisjóðunum. Í sparisjóðsl. er ekkert ákvæði um það hvernig kjósa skuli stjórnir sparisjóða, heldur er í þeim svo ákveðið, að í l. hvers einstaks sparisjóðs skuli vera tiltekið, hvernig þessu atriði skuli hagað. En sparisjóðirnir eru látnir sjálfráðir um það að öðru leyti.

Þetta frv., sem við þm. Eyf. höfum leyft okkur að flytja hér, fer ekkert fram á breyt. í þessu efni, sem snertir þá sparisjóði, sem félög einstaklinga eða hreppsfélög eiga. Hinsvegar fer það fram á, að ef bæjarfélag eða heilt sýslufélag á sparisjóð, þá sé svo ákveðið í l., að stj. hans sé kosin með hlutfallskosningu af viðkomandi bæjarstjórn eða viðkomandi sýslunefnd.

Ég hygg, að það sé orðin viðurkennd regla, a. m. k. um kosningar þær, sem bæjarstj. hafa með að gera, að þær eigi að vera hlutfallskosningar. Og er það vitanlega alveg jafnréttmætt að viðhafa hlutfallskosningu, þó að um sparisjóðsstjórn sé að ræða, eins og um stj. hverrar annarar stofnunar, sem bæjarstjórnir kjósa stj. fyrir.

Svo eru til í landinu sparisjóðir, sem ekkieru eiginlega í eign neinna sérstakra aðilja. Þeir hafa verið stofnaðir fyrir forgöngu einstaklinga, þannig vanalega, að einstakir menn, a. m. k. í byrjun, hafa gengið í ábyrgð fyrir sjóðinn um það, að hann fullnægi sínum skuldbindingum. En að öðru leyti eru þeir sjóðir ekki eign neinna einstaklinga eða sérstakra aðilja, heldur einskonar sjálfseignarstofnanir. Þessir sparisjóðir finnst okkur að hljóti að skoðast sem eign almennings, því að vegna almennings hafa þeir verið stofnaðir og starfræktir. Þess vegna finnst okkur eðlilegt, í fyrsta lagi það, að l. um sparisjóði ákveði um það, hvernig kjósa skuli í stjórn slíkra sparisjóða, að um það gildi ákveðnar reglur í landslögum. Og við sjáum ekki heppilegri leið að því er þessa sjóði snertir heldur en að ríkisstj. hafi nokkurn íhlutunarrétt um það, hvernig stjórn þeirra er fyrir komið, og að sú sveitar- eða bæjarstjórn, þar sem sjóðurinn er, hafi að öðru leyti rétt til þess að ráðstafa þessu.

Ég skal fúslega játa, að það mætti hugsa sér öðruvísi fyrirkomulag á þessu, og má vel vera, að það verði tekið til athugunar hér í þessari hv. d. síðar við umr. þessa máls. En einhverjar fastar reglur fyrir þessu finnst mér hljóti að þurfa að gera.

Það mun ekki vera dæmalaust, að slíkir sjóðir hafi verið stofnaðir, eins og ég gat um, og stofnendur hafi í fyrstu ráðið, hverjir yrðu skipaðir í sjóðsstjórnina. Svo hefir langur tími liðið. Ábyrgðarmennirnir hafa dáið, það er trassað að endurnýja ábyrgðina, með því að sparisjóðurinn hefir varasjóð, og þar náttúrlega nokkra tryggingu. Og svo gengur það þannig, að stjórn sparisjóðsins endurnýjar sig sjálf, án þess að almenningur hafi nokkuð þar um að segja, hvernig slíkir sjóðir eru reknir.

Þá leggjum við til, að stj. hinna stærri sparisjóða skuli vera skipaður á mönnum a. m. k. En í sparisjóðsl. hefir verið ákveðið, að þær skuli vera skipaðar 3 mönnum a. m. k.

Þetta er náttúrlega ekkert aðalatriði. En það er nú samt svo, að þar sem 3 menn eiga að ráða, þar þarf ekki nema einn að forfallast til þess að ráðin séu komin í hendur eins manns, formanns stjórnarinnar. (ÞÞ: Þá kemur varamaður í stað þess, sem forfallast). Já, það má hugsa sér varamann. En okkur þykir tryggara, að slíkar sparisjóðsstjórnir séu skipaðar 5 mönnum. Ég fæ ekki séð, að það geti skaðað neinn sparisjóð, þótt svo verði ákveðið.

Það er ennfremur lagt til í frv., að þegar um stærri sparisjóði er að ræða en þá, sem hafa 200 þús. kr. innstæðufé, þá sé það ekki heimilt, að menn úr stjórn sjóðsins annist gjaldkerastarf eða bókarastarf við sjóðinn. Þetta getur orkað tvímælis. En ef stjórnarnefndarmenn annast þessi daglegu störf fyrir sjóðina, þá er vitanlega ekki unnt að tala um eftirlit með sjóðunum af þeirra hendi sem stjórnarnefndarmanna, því að enginn er verulega vel til þess fallinn að líta eftir sjálfum sér.

Þá eru ákvæði um það í frv., að stjórnarnefndarmenn og starfsmenn sparisjóða megi ekki reka nein þau störf, sem komið geti í bága við hagsmuni sjóðsins og starfsemi, eins og t. d. lánastarfsemi, hverju nafni sem nefnist. Ég býst við, að þetta ákvæði verði álitið sjálfsagt um starfsmenn við sparisjóði a. m. k. Vera má, að það geti orkað tvímælis að því er snertir stjórnarnefndarmenn við sparisjóði, sem ekki eru jafnframt starfsmenn þeirra. En það nær ekki nokkurri átt að láta starfsmönnum sparisjóða, sem hafa kannske föst störf við sparisjóði, vera það heimilt að reka nein þau störf, sem gætu verið í hagsmunasamkeppni við sparisjóðinn.

Þá leggjum við að sjálfsögðu til, að sparisjóðum, sem þessi lagabreyt. tekur til, ef samþ. verður, verði gefinn nokkur frestur til þess að koma lögum sínum og reglugerðum í það horf, sem frv. ætlast til, ef að l. verður.

Þá er ennfremur nýmæli í frv., viðkomandi eftirliti með sparisjóðum. Eins og kunnugt er, voru árið 1923 sett l. um eftirlit með bönkum og sparisjóðum og svo ákveðið, að í það starf skyldi vera skipaður sérstakur embættismaður, til þess að hafa það eftirlit á hendi. Nú hefir á undanförnum árum nokkuð verið um það deilt, hversu mikið gagn hafi orðið að slíku eftirliti. Landsbankinn og Útvegsbankinn hafa talið sig hafa lítið gagn af þessu eftirliti og ekki viljað borga hluta af launum þessa starfsmanns, eins og þó var í l. ákveðið, að þeir ættu að gera. Nú sem stendur gegnir enginn þessu starfi, og ekki hefir orðið vart neinnar kröfu um það, að skipaður verði maður í starfið aftur. Við flm. frv. lítum svo á, að hvað sem bönkunum líður, þá sé það nauðsynlegt, að ríkisvaldið hafi nokkurt eftirlit með sparisjóðunum víðsvegar um landið, því að þar á almenningur mjög mikið í húfi, hvernig fer um rekstur sparisjóðanna. Leggjum við því til, að um þetta eftirlit sé ákveðið í sjálfum sparisjóðslögunum. Og þá höfum við hugsað okkur það fyrirkomulag, að fjármálaráðuneytinu sé falið að hafa þetta eftirlit með höndum. En ef ráðuneytinu verður falið þetta, þá sjáum við ekki ástæðu til annars en að nema úr gildi l. um eftirlit með bönkum og sparisjóðum frá 1923. Höfum við því lagt til, að þau l. verði felld úr gildi. Ástæðan til þess, að við leggjum til, að fjmrn. sé falið þetta eftirlit, en ekki skipaður til þess sérstakur embættismaður, er aðallega sú, að við teljum það fyrirkomulag, sem við stingum upp á, ódýrara, því að okkur virðist að fjmrn. geti annazt þetta eftirlit án þess að bætt sé í það starfsmönnum, ef ekki verða gerðar sérstakar ráðstafanir um eftirlit með bönkum. Annar aukinn kostnaður en ferðakostnaður vegna þessa eftirlits með sparisjóðunum ætti því, að okkar áliti, ekki að eiga sér stað frá því, sem nú er. Að öðru leyti vísa ég svo til grg. frv. Það kann að orka tvímælis, hvort mál þetta eigi frekar heima í fjhn. eða allshn. Ég fyrir mitt leyti legg þó til, að því verði vísað til allshn.