19.03.1935
Efri deild: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (1203)
31. mál, sparisjóðir
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Þetta frv. er flutt í þeim tilgangi að tryggja sem bezt alla stjórn og starfrækslu sparisjóða á landinu. — Allshn. hefir haft frv. til meðferðar. Hún hefir athugað það nokkuð ýtarlega og orðið sammála um, að rétt sé að auka nokkuð við ákvæði gildandi l. um öryggi fyrir tryggri stjórn og starfrækslu sparisjóða í landinu. Hinsvegar ber þess að gæta að áliti n., að jafnhliða þessu þarf að hafa það í huga að þrengja ekki um of með þessu kosti hinna smærri sparisjóða í landinu, bæði þeirra, sem stofna skal, og hinna smærri. Þessa þætti málsins hefir n. athugað og komizt að þeirri niðurstöðu, að rétt sé að gera nokkrar breyt. á frv., en ég hygg, að mér sé óhætt að segja það, að n. hafi öll kannnzt við, að þörf væri fyrir nokkuð fyllri ákvæði um stjórn og starfrækslu sparisjóða heldur en nú eru til í l. Þó er náttúrlega rétt að geta þess, að meiri hl. n. hefir undirritað nál. með fyrirvara, en ég held, að sá fyrirvari gildi ekki það, að þessir hv. nm. fylgi ekki frv., ef brtt. verða samþ., þó þeir séu ekki að öllu leyti ánægðir með þær allir. Þess vegna geri ég fyllilega ráð fyrir því, að þær verði samþ. Hinsvegar hefi ég enga heimild til að lýsa afstöðu n. gegn frv., ef brtt. næðu ekki samþykki, en um þessar brtt. n. á þskj. 161 virðist sæmilegt samkomulag í n.
Þá vil ég snúa mér að hinum einstöku brtt. n., sem ég tel þó eigi þörf á að fara mörgum orðum um, því ég álít, að þær liggi nokkuð ljóst fyrir. 1. gr. frv. vill öll n. orða upp að miklu leyti, en breyt. er aðeins sú ein, að við viljum fella úr frv. það skilyrði til þess að sparisjóður hafi 5 menn í stjórn, að umsetning sjóðsins skuli vera 200 þús. kr. eða meira. Við viljum fella niður þetta skilyrði, af því að við teljum, að sparisjóðsinnstæðufé hvers sjóðs sé ekki réttur mælikvarði á tekjur sparisjóða eða hve stjórn þeirra sé umfangsmikil. Hinsvegar er það eftir því sem sjóðurinn hefir meiri hlaupareikningsstarfsemi að stjórn hans verður umfangsmeiri og ábyrgðarmeiri, en þá jafnframt meiri tekjuvonir. Í þessu sambandi má geta þess, að sparisjóðir, sem hafa um 200 þús. kr. umsetningu, geta gefið í brútto tekjur um 3000 kr., sem er munurinn á innláns- og útlánsvöxtum. Það sjá allir, að hér er um að ræða svo litlar tekjur, að gæta þarf hins mesta varnaðar með að íþyngja þeim ekki svo með útgjöldum, að þeir geti ekki safnað í sína varasjóði, sem verður að telja mjög áríðandi.
Þá er önnur breytingin við 1. gr. frv. á 2. málsgr. Ég skal játa, að það er nokkur efnisbreyt., sem n. vill hér koma á. Í stað einnar málsgr. Í frv. komi þrjár málsgr., þar sem sjóðunum er skipt í flokka eftir eðli þeirra og uppruna, og eiga við hvern flokk sérstök ákvæði um skipun stjórnar. Það eru þá fyrst sparisjóðir, sem eru sjálfstæðar stofnanir, þar sem uppfyllt er það skilyrði, að hver sjóður hefir minnst 20 ábyrgðarmenn í kaupstöðum, en 12 utan kaupstaða. Er þetta í sjálfu sér ekki eingöngu gert vegna þess, að ábyrgð þessi sé í sjálfu sér svo mikið öryggi fyrir sjóðina, heldur hitt, að svo fjölmenn ábyrgð skapi meira öryggi um stjórn og starfrækslu þeirra.
Í frv. er lagt til, að stjórnir þessara sjóða séu skipaðar af viðkomandi sýslunefnd eða bæjarstjórn, en formaður sé skipaður af fjmrh. Þetta virtist n. sumpart ekki réttlátt og sumpart ekki heppilegt. Hún telur það ekki réttlátt gagnvart ábyrgðarmönnunum, sem auk ábyrgðarinnar hafa lagt á sig allmikla fyrirhöfn vegna sjóðanna, að þeir fái ekki að kjósa meiri hluta stjórnarinnar. Hinsvegar viðurkennir n., að öruggt eftirlit þurfi með sparisjóðum, og leggur því til, að viðkomandi sýslunefndir eða bæjarstjórnir kjósi í sjóðstjórn hverja einn mann af þremur eða tvo af fimm. Með því á að vera tryggt, að stjórn sjóðanna fari sæmilega úr hendi.
Í sambandi við þetta vil ég geta þess, að n. leggur til síðar í brtt., að viðkomandi sýslunefnd eða bæjarstjórn kjósi endurskoðendur sjóðanna. Telur n. þetta beztu tryggingarráðstöfunina, en vildi hinsvegar ekki ganga lengra í því að svipta ábyrgðarmenn íhlutun um stjórn.
Ég sagði, að n. hefði þótt varhugavert að lögfesta það, að fjmrh. skipaði formenn sparisjóðsstjórna. Ég álít varhugavert að setja á málið nokkurn opinberan blæ. Gæti hugsazt, að af því kynni að leiða, að svo yrði litið á, að ætlazt mætti til, að hið opinbera bæri þá nokkra ábyrgð á starfsemi sjóðanna, en það telur n. í alla staði óheppilegt, bæði vegna ríkisins og ekki síður vegna sjóðanna sjálfra.
Ég hygg, að n. sé öll sammála um það, að sparisjóðir úti um byggðir landsins, sem vel er stjórnað, séu eitt af því nauðsynlegasta til þess að tryggja sæmilega afkomu hvers héraðs, og ber það fyrst til þess, að heppilegt er að hafa sæmilegar peningastofnanir, sem taka yfir ákveðin svæði með lánveitingar, þar sem hver sjóður hefir fullkomna þekkingu á högum sinna skuldunauta, og betri en fjarlægari stofnanir geta haft. Þá hefir reynslan sýnt það, að margur eyririnn hefir sparazt á báða bóga þar, sem lánstofnun var til í héraðinu, og hefir því n. viljað tryggja tilveru sparisjóðanna á sem beztan hátt.
Þá er einnig í 3. málsgr. 1. gr., eins og n. ætlast til að hún verði, gert ráð fyrir því, hvernig skipta skuli stjórn þeirra sjóða, sem ekki hafa þá tilskildu tölu ábyrgðarmanna, sem gert er ráð fyrir í 2. málsgr. N. þótti réttara að slá varnagla við því, hvernig kjósa skyldi stjórn slíkra sjóða, þótt þeir muni ekki vera margir. Leggur n. til, að stjórnir þeirra verði kjörnar af sýslunefndum eða bæjarstjórnum.
Í þriðja lagi þótti n. rétt að minnast á þá sjóði, sem eru eign hreppsfélaga, og sjóði sem eru eign einstakra manna eða félaga og stofnaðir hafa verið samkv. heimild í I. frá 1915. N. þótti rétt, að stjórnir þessara sjóða væru skipaðar eftir því sem nú er ákveðið í l. eða reglugerðum sjóðanna af hlutaðeigendum sjálfum. Hinsvegar þótti rétt, að endurskoðendur fyrir þessa sjóði væru eftirleiðis skipaðir af sýslunefndum eða bæjarstjórnum, eins og aðra sjóði.
Ég hefi þá gert nokkra grein fyrir þessari 1. brtt. allshn., og læt við það sitja að þessu sinni. Í síðustu málsgr. 1. brtt. er ákveðið, að kosningar í stjórnir sparisjóða gildi til eins árs í senn. Við teljum sjálfsagt, að svo skuli vera, og nauðsynlegt vegna öryggis, til þess að síður sé hætta á því, að stjórnirnar trénist upp fyrir það, að þær séu sjálfkjörnar frá ári til árs, og að eftirlit með sjóðunum geti þar af leiðandi fallið niður.
2. brtt. allshn. er við 2. gr., og er aðalbreyt. sú, að orðið „lánsverzlun“ er fellt úr frv. N. virtist, að ná mætti tilætluðum árangri með þessari gr. frv. þrátt fyrir þessa breytingu.
Þá leggur n. til, að 3. gr. frv. falli niður, en sú gr. mælir svo fyrir, að ef sjóður hefir 200 þús. kr. innstæðufé eða rekur almenna hlaupareiknings- eða innheimtustarfsemi, þá sé óheimilt, að stjórnendur hans hafi dagleg framkvæmdarstörf með höndum fyrir sjóðinn. Þetta virtist n. nokkuð varhugavert ákvæði, ekki sízt þegar búið er að breyta fyrirkomulagi sjóðanna svo, að allir sjóðir, sem hafa með höndum hlaupareikningsstarfsemi, hafa fimm manna stjórnir. N. fannst af þeim ástæðum m. a. minni ástæða til þess að útiloka stjórnendurna frá daglegri stjórn sjóðsins. Þar sem um fimm manna stjórn er að ræða, lítur n. svo á, að orðið gæti dálítið erfitt að fá hæfari menn utan stjórnar sjóðsins, og sér n. ekki, að í 3. gr. felist neitt sérstakt öryggi.
4. brtt. n. hefi ég að nokkru leyti gert grein fyrir áður, þar er lagt til, að endurskoðendur sparisjóða séu í öllum tilfellum kosnir af hlutaðeigandi bæjarstjórn eða sýslunefnd.
5. brtt. er aðeins leiðrétting eða orðabreyting. 6. brtt. er við 7. gr., umorðun á niðurlagi hennar. Þar stendur, að kostnaðurinn, sem leiðir af eftirlitinu, skuli skiptast á sjóðina í hlutfalli við þá veltu, sem þeir hafa yfir að ráða. N. þótti réttara að taka það skýrt fram, að þetta ætti að miðast við inn- og útborganir á árinu. Það er sennilegt, að meiningin sé hin sama í þessu hvorttveggja, en þó má misskilja orðið að hafa í „veltu“, en eins og þetta er nú verður það með engu móti misskilið.
Síðasta brtt. n. er á þá lund, að ef þetta frv. verði að l., skuli texti laganna færður inn í meginmál l. frá 1915 og l. gefin út þannig breyt. N. kannast við, að þetta hefir nokkurn kostnað í för með sér, en telur samt, að ekki sé í það horfandi, því að sparisjóðirnir eru býsna margir alls á landinu, þótt ekki séu þeir allir stórir, og frekar gæti þetta farið á milli mála hjá mönnum, ef lögin eru í fleiru en einu lagi. Og n. lítur svo á, að þetta verði handhægara fyrir þá, sem að sjóðunum standa, að hafa l. í einu lagi.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð fleiri. Ég geri ráð fyrir, að hv. 4. þm. Reykv. geri grein fyrir sínum brtt. á þskj. 193. og mun ég þá lýsa afstöðu minni til þeirra, en get ekki að fullu lýst afstöðu n. til þeirra, nema að því leyti, sem fram kom á fundum í n. meðan málið var þar til umr.