19.03.1935
Efri deild: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (1207)

31. mál, sparisjóðir

Sigurjón Á. Ólafsson [óyfirl.]:

Ég gerði ekki ráð fyrir að standa aftur upp í þessu máli, nema alveg sérstakt tilefni gæfist til frá hv. frsm. En tilefnið frá hans hálfu er það, að hann hélt því fram, að með tölu ábyrgðarmannanna í brtt. mínum sé verið að skapa skyldur á hendur sparisjóðunum, sem ekki hafi verið til áður, en eins og mín till. ber með sér, þá er ákveðið, að ef tala ábyrgðarmannanna hefir ekki verið sú, er reglur eða lög sparisjóðanna hafa ákveðið, þá sé ekki ástæða til þess að láta þá menn, sem vanræksluna hafa sýnt, fá tækifæri til þess að uppfylla hin settu skilyrði. Þennan misskilning hv. þm. vildi ég leiðrétta, því að það er vitanlega rétt, að tala ábyrgðarmannanna getur í mörgum tilfellum hafa verið miklu lægri en hér er gert ráð fyrir. Hv. frsm. leggur mjög mikið upp úr því, að réttur stofnendanna haldist til þess að hafa meiri hluta í stjórn sjóðanna. Nú vil ég benda honum á það, að flestir þeir, sem unnið hafa að því að koma þessum sjóðum upp, eru fallnir í valinn, og nýir menn komnir í þeirra störf við sjóðina, en hafa lítið að því unnið að koma sjóðunum upp. Það myndast þarna fámennur hópur manna, sem venjulega eru kallaðir „klíkur“, og aðstaða manna til að fá lán úr sjóðunum fer eftir kunningsskap o. fl. þ. h. Hér er aðeins um þá sjóði að ræða, sem búnir eru að starfa nokkuð lengi og eiga sterka varasjóði.

Ég hefi ekki þá trú, þó að 12 eða 20 ábyrgðarmenn kjósi í stjórn sjóðanna, að þá verði þeim betur stjórnað. Stjórn sparisjóða byggist yfirleitt á því, að það séu glöggir og heiðarlegir menn, sem stjórnina skipa. Ég dreg það ekki í vafa, að í bæjarstjórnir og sýslunefndir séu yfirleitt kosnir þeir menn, sem almenningur getur treyst. Ég fyrir mitt leyti treysti þessum mönnum betur til þess að kjósa meiri hluta í stjórn sjóða en fámennri klíku.

Hv. 1. þm. Skagf. vildi halda því fram, að hér væri verið að ganga inn á þá braut, að skapa sparisjóðunum ríkisábyrgð. Ég get nú ekki séð, að svo sé. En ákveðið um, að fjmrh. skipaði í ýmsum tilfellum oddamann, gat bent í þá átt, en n. leggur til, að það verði fellt niður, af því að hún var sammála um, að það gæti skapað ríkisábyrgð.

Ég skal svo láta niður falla frekari umr. um þetta mál. Ég býzt ekki við, að till. mínar nái samþykki hv. þdm., þar sem 4 af 5 nm. hafa lýst sig mótfallna þeim.