29.03.1935
Neðri deild: 40. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í B-deild Alþingistíðinda. (1221)

31. mál, sparisjóðir

Sigurður Kristjánsson:

Ég er meðflm. að till., 291. Aðalflm. hefir mælt fyrir henni að sönnu, en ég vildi þó bæta þar við örfáum orðum.

Um sjálft frv-. skal ég vera fáorður. Það mætti ef til vill skilja það svo, að ég myndi vera fylgjandi ríkisábyrgð á lánsstofnunum almennt, af því að ég er meðflm. þessarar till. En ég vildi ákveðið taka fram, að ég er það ekki og álít, að það hafi verið stigið varhugavert spor, sem hljóti að leiða af sér fleiri á sömu braut, þegar ríkið gekk upphaflega í ábyrgð fyrir innlánsfé Landsbankans. Það er víst, að ríkisábyrgð var upphaflega tekin á Landsbankanum ekki vegna þess einvörðungu, að það þætti nauðsynlegt, að innlánsfé landsmanna yfirleitt væri eldtryggt. Ég held, að yfirleitt hafi menn gert ráð fyrir því, að það væri ekki í mikilli hættu hjá lánsstofnunum. En það var vissulega á bak við það miklu lakari hugsun, sem sé sú, að gera þær stofnanir, sem taka við innlánsfé hér á landi, misjafnlega öruggar gagnvart innlánseigendum, eða a. m. k. í augum þeirra. Þetta tókst nú svo prýðilega, að sá banki, sem ekki fékk ábyrgðina, varð fyrir óvild talsvert margra hér á landi, og efalaust af því, að hann lánaði þeim atvinnurekstri, sem hefir átt marga óvini í þjóðfélaginu, og það er sjávarútvegurinn. Árangurinn var sá, að Íslandsbanki komst í stórkostleg vandræði. Og þegar um málið fékkst loks friður að nafninu til, þá var það ráð tekið að láta þessum banka einnig í té ríkisábyrgð á innstæðufé.

Nú var það sýnilegt — og er skiljanlegt hverjum manni —, að það mun draga fé undan þeim innlánsstofnunum, sem enga ríkisábyrgð hafa, að aðrar lánsstofnanir eða geymslustofnanir fjár hafa þessa ríkisábyrgð. Að þetta hefir ekki komið sýnilega að mjög mikilli sök fyrir sparisjóði, stafar fyrst og fremst af því, að menn eru nokkuð lengi að átta sig á hlutunum hér á landi. Og í öðru lagi af því, að sparisjóðir hafa yfirleitt reynzt mjög öruggir, og innan sveita er mönnum yfirleitt vel kunnugt um það, hvernig stjórnir sparisjóða eru. Ef það eru gætnir menn og góðir, Þá láta menn sér það lynda sem sæmilega tryggingu. En það, sem þó áreiðanlega hefir valdið miklu um það, að sparisjóðir hafa haldið sínu innlánsfé, er einmitt það, að sumir þeirra a. m. k. — máske líka allir — guldu lítils háttar hærri innlánsvexti en bankar gera. Þetta var sparisjóðunum mögulegt að gera án þess að það yrði þeim að nokkru tjóni og án þess að þeir þyrftu að hafa útlánsvexti hærri en aðrar lánsstofnanir, af þeirri ástæðu, að rekstrarkostnaður þeirra hefir verið sára lítill. Sumum sparisjóðum a. m. k. hafa menn stjórnað og unnið allt við, sem vinna þurfti, fyrir svo að segja ekki neitt. Nú var það ráð tekið að ákveða með l., hvað sparisjóðsvextir mættu vera. Og þeir mega ekki hærri vera en Landsbankinn ákveður á hverjum tíma. Hann notaði þetta tækifæri til þess að lækka vextina, og er ekki ólíklegt, að það verði gert ennþá meir. Þá kom fram till. um það, að sparisjóðum væri heimilt að hafa innlánsvexti 1/2 % hærri, en náði ekki framgangi. Nú er þess vegna sýnilegt, að þetta getur ekki orðið til þess að halda fé hjá sparisjóðunum. Og því meir sem innlánsvextir lækka og vextir verða minna atriði í augum innlánseigenda, en hitt aðalatriði, að geyma féð, þá verður því meir hugsað til þessa: Hvar er geymslustaðurinn öruggastur? Og þá er ekkert óeðlilegt, þó að verði fyrir mönnum þessi ríkisábyrgð og vegi nokkuð mikið í vitund þeirra.

Ef svo er litið á, að nauðsyn beri til, að sparisjóðir starfi sem víðast, þá get ég ekki annað séð en að það verði að tryggja, að féð dragist ekki frá þeim. Og ég sé ekki, að það geti orðið nema með tvennu móti. Annaðhvort að þeim sé heimilað að greiða eitthvað örlítið hærri innlánsvexti, eða þá að þeir fái samskonar ábyrgð eins og aðrar innlánsstofnanir hafa, sem sé bankarnir. Ef það er rétt, sem hér hefir verið sagt, að sparisjóðum sé yfirleitt stjórnað gætilega og fé sé þar tiltölulega mjög öruggt, þá er þessi ábyrgð heldur ekki sérlega hættuleg. En ég vil ennþá taka fram, að ég mundi ekki hafa verið meðflm. að þessari till., ef þessi ríkisábyrgð væri ekki komin hjá bönkunum. Því að ég tel mikla hættu á því, að hún verði til þess að draga fé undan sparisjóðunum. Það þarf ekki að fara morgum orðum um það, hversu mikilsvirði sparisjóðir eru fyrir byggðarlögin. Það hefir verið gert hér áður, einkanlega af hv. þm. A.-Húnv. Það er vitanlegt, að það yrði afskaplega örðugt fyrir menn úti um dreifbýli landsins og á afskekktum stöðum að fá nokkurt lánsfé, ef sparisjóðir legðust niður eða færðist verulega saman þeirra starfsemi. Það verður að teljast mjög mikils virði fyrir þjóðfélagið, að útlánastarfsemi sé sem allra víðast, sökum þess, að útlán verða jafnan með meira öryggi, ef stjórnendur lánsstofnana þekkja lántakendur að öllu leyti, ekki aðeins fjárhag þeirra, heldur og alla afkomumöguleika og upplag þeirra. Af því mun leiða, að miklu minni töp eiga sér stað heldur en ef allir eiga að sækja um langan veg til lánsstofnana, sem þá þekkja sáralítið til skuldunautanna.

Í annan stað er það alveg víst, að sparifjársöfnun á sér stórum frekar stað, ef svo að segja í hverri sveit eða sem allra víðast eru til öruggar stofnanir, sem taka við innlánsfé. Og ég ætla, að það muni ekki vera skiptar skoðanir um það, að það sé afarmikils virði fyrir fátækt þjóðfélag, að þjóðfélagsborgararnir spari hvern eyri, sem þeir geta, og leggi á vöxtu, en eyði þeim ekki jafnóðum í misjafnlega þarfa hluti.

Ef menn vilja líta á þessar ástæður, sem ég hefi fart hér fram bæði fyrir nauðsyn sparisjóða, sem sjálfsagt allir viðurkenna, og eins líka á þá hættu, sem ég tel, að þeir séu í, ef þeir hvorki mega hafa að neinu leyti hærri innlánsvexti né heldur njóta sömu ábyrgðar á innlánsfé og aðrar innlánsstofnanir, — ef menn vilja líta á þessar ástæður, þá trúi ég ekki öðru en að þeir greiði atkv. með brtt. á þskj. 291.