25.03.1935
Efri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (1237)
102. mál, verslunarlóðin í Hnífsdal
Flm. (Jón Auðunn Jónsson):
Þegar þetta frv. var til 2. umr., fékk ég bréf frá oddvita Eyrarhrepps um það, að lóðamerkin eins og þau væru í frv. væru ekki glögg, vegna þess að þessi svonefndi Einarshryggur væri svo að segja jafnaður við jörðu. Þess vegna væri rétt, að í staðinn kæmi landamerki Bakkalands og þaðan stefna á Traðargil. — Ég vænti þess, að hv. d. geti fallizt á þessa breytingu.