16.03.1935
Neðri deild: 30. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 860 í B-deild Alþingistíðinda. (1266)

89. mál, eftirlit með verksmiðjum og vélum

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er flutt af hv. þm. Hafnf. og mér í samráði við atvmrh. Það er gert samkv. beiðni verkalýðsfélaganna hér í Reykjavík, sem hafa farið fram á, að eftirlit væri haft með ýmsum vinnustöðum, bæði við höfnina og úti um bæinn, þar sem álitið er, að lög um eftirlit með vélum og verksmiðjum nái ekki til.

Eins og þá, sem blöðin lesa, mun reka minni til, þá verður hér hvert slysið á fætur öðru, t. d. við höfnina. Nú eftir nýárið dó þar maður af slysi og nokkrir meiddust hættulega. Eitthvað slíkt kemur fyrir á flestum vertíðum, og það er af því, að uppskipunartækin eru ekki í lagi. Okkur virðist liggja næst að bæta við svipuðum fyrirmælum og eru í l. um eftirlit með velum og verksmiðjum og flytjum því frv. um viðauka við þau. Vænti ég , að því verði vísað til 2. umr. og allshn.