02.04.1935
Efri deild: 40. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (1283)

89. mál, eftirlit með verksmiðjum og vélum

Þorsteinn Briem:

Ég hefi borið fram smábrtt. við 2. gr. frv., þar sem stendur, að fela megi lögreglustjóra að sjá um eftirlit samkv. l. þessum. Þar vil ég bæta við, að lögreglustjóri geti þá að því er tekur til eftirlits samkv. 1. gr. 2 krafizt til þess aðstöðar byggingarfulltrúa, ef hann er á staðnum.

Þessi brtt. er fram borin af því, að að mínu áliti mundu verða meiri líkur til gagns af þessu eftirliti, ef lögreglustjóri gæti krafizt aðstöðar byggingarfulltrúa. Ég tel því, að þessi brtt. miði að því, sem nauðsynlegast er í þessu máli, að tryggja sæmilegt eftirlit með verkpöllum, uví að byggingarfulltrúi er sá maður, sem bezt ætti að hafa vit á þessu. Hann verður líka að koma á þessa staði hvort sem er til eftirlits, svo að lítill tími þyrfti að fara hjá honum til þessa eftirlits.

Ég hygg, að þetta mál sé að flestra dómi svo nauðsynlegt og gott mál, að rað mundi ekki hindra framgang þess á þessum fyrri hl. þingsins, þó að brtt. yrði samþ., en vitanlega mundi hæstv. ráðh. vita þar bezt um, og ef hann telur frv. ekki hættu búna, þó að brtt. verði samþ., þá vona ég, að hann vilji styðja mitt mál.