17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2422 í B-deild Alþingistíðinda. (131)

Afgreiðsla þingmála

Ólafur Thors:

Ég vil utan dagskrár beina því til hæstv. forseta, hvort hann sér sér ekki fært að flýta fyrir síðasta máli á dagskránni (frv. um afnám útflutningsgjalds af sjávarafurðum) meira heldur en enn hefir getað orðið.

Ég get um þetta mál vísað til rökstuðnings, sem kom fram hér í d. frá hv. 6. þm. Reykv., þar sem hann skýrði, hvenær málið var flutt á Alþ., og hver gangur þess hefði verið, og rökstuddi þá beiðni sína til forseta um að taka málið á dagskrá. Hæstv. forseti hefir nú tryggt, að málið hefir verið í dagskrá undanfarna daga, en það, hefir verið þar svo neðarlega og er ennþá, að ekki eru líkur til, að það komi fyrir í dag. Ég leyfi mér því að beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að málið verði ofar á dagskrá á morgun. Ég þarf ekki að leiða athygli forseta að því, að ofar á dagskrá eru önnur mál, Sem síðar eru fram komin og ekki eins áríðandi og þetta.