09.03.1935
Neðri deild: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 866 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)
74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda
Thor Thors:
Ég verð að segja um þetta mál, sem var eitt af stærri málum síðasta þings og eitt hið mesta deilumál þá, að mér þykir leitt, að það skuli vera tekið upp nú, þegar svo fámennt er í d. sem raun ber vitni um og þegar fulltrúar sjálfstæðismanna í sjútvn. eru fjarstaddir. En að þeir eru ekki mættir, stafar af því, að þeir héldu, að haldið myndi áfram umr. um mál það, er hér var áður til umr. og ekki var lokið. Ég ætla ekki að taka að mér hlutverk þeirra, en þó verð ég að segja, að þetta frv. er okkur sjálfstæðismönnum sár vonbrigði. Það frv., sem borið var fram í fyrra, beindist að skuldaskilum allrar útgerðarinnar. En stefna stjórnarflokkanna í þessu máli er sú, að sinna aðeins hinni smærri útgerð. En jafnvel út frá uví sjónarmiði er þetta frv. lítilsvirði. Ég sé ekki betur en þau fjárframlög, sem gert er ráð fyrir, séu ófullnægjandi, og alls ekki trygging fyrir því, heldur þvert á móti mjög vafasamt, hvort nokkurt fé er hægt að leggja fram í þessu skyni.
Að vísu er svo sagt í frv., að stofnfé skuldaskilasjoðs eigi að vera 11/2 millj., og skuli sú upphæð tekin að láni og ábyrgð ríkissjóðs vera fyrir því láni. Enda þótt það hljóði svona í frv., þá vita allir hv. þm. og öll þjóðin, að mjög er það óvíst, hvort hægt er að nota þessa grein frv. Það er opinbert mál, að í sambandi við lántökuna síðustu í Lundúnum varð núv. hæstv. fjmrh. að gefa skriflega yfirlýsingu, sem hefir verið birt í blöðunum hér, að það væri stefna hans og núv. ríkisstj. að halda ríkinu frá öllum lántökum erlendis, unz gjaldeyrisvandræðum þjóðarinnar væri breytt í betra horf. Það eru aðeins nokkrir dagar síðan þessi yfirlýsing var gefin. Og á þessum fáu dögum hefir engin breyt. orðið, sem réttlæti það, að stj. fari, þvert ofan í gefin loforð, að leita fyrir sér um lántöku erlendis.
Það er öllum ljóst, að fjármálaástandið hér innanlands er ekki slíkt, að hægt sé að vænta þess, að útvega megi hér þetta lán, að uppbæð 11/2 millj kr. Mér finnst því augljóst, að hér sé um kák eitt að ræða og að engin alvara liggi á bak við þetta frv. Ríkisstj. má vera það fullkomlega ljóst, að innanlands verður þetta lán ekki tekið, og ríkisstj. ætti að vera allra manna bezt kunnugt um það, að hún má ekki leita fyrir sér um lántöku erlendis. Hvers virði er þetta þá í frv.? Það er gersamlega einskis nýtt, og frv. eins og það liggur nú fyrir einungis til þess að villa mönnum sýn.
Ég sagði áðan, að þetta frv. væri okkur sjálfstæðismönnum sár vonbrigði. Frv. um skuldaskilasjóð, eins og það lá fyrir síðasta Alþ., var vandlega undirbúið af milliþingan., sem starfað hafði að sjávarútvegsmálum. Það frv. var jafnvel betur rökstutt en nokkurt annað frv., sem lá þá fyrir þinginu. Það var rökstutt með bók, sem fól í sér skýrslu um afkomu og fjárhag allra útgerðarmanna á landinu, og sýndi þessi skýrsla, hversu knýjandi þörf það var fyrir ríkisvaldið að veita þessum aðalatvinnuvegi landsmanna einhverja hjálp, sem að gagni mætti koma. Það var jafnknýjandi þörf — ef ekki ennþá bráðnauðsynlegri — eins og var til þess að bjarga landbúnaðinum, sem Alþ. tók að sér að reisa úr rústum með löggjöfinni um kreppulánasjóð. Þá má varpa fram þeirri spurningu, hvort sjávarútvegurinn verði ekki að teljast svo nauðsynlegur þáttur í atvinnulífi þjóðarinnar, að ástæða sé til þess fyrir ríkisvaldið að bjarga honum við. Ég hygg, að hver og einn einasti hv. þm., sem lítur á fjárhagsafkomu þjóðarinnar með sanngirni, hljóti að viðurkenna, að rík ástæða hafi verið fyrir hendi til þess. En af öllum þessum ástæðum eru það okkur sjálfstæðismönnum sár vonbrigði, að þegar ríkisstj. hefir tekið þetta mál að sér að lokum, þá skuli frv., sem hún ber fram, ekki vera burðugra en þetta frv., sem hér liggur fyrir.
Það var ljóst á síðasta þingi, að allir útvegsmenn og allflestir sjómenn lögðu hið mesta kapp á það, að Alþ. tæki málinu með festu og alvöru. Frv. um skuldaskilasjóð hafði aðeins legið fyrir þinginu stutta stund, þegar tóku að berast áskoranir úr öllum héruðum landsins, og það jafnt frá framsóknarmönnum og alþýðuflokksmönnum sem sjálfstæðismönnum, sem skoruðu á Alþ. að samþ. frv. um skuldaskilasjóð. Áskoranir þessa efnis komu úr kjördæmi hæstv. atvmrh. og ýmsum öðrum kjördæmum, sem stj.liðar eru fulltrúar fyrir á Alþ.
Þegar þess er gætt, hve ríkar og almennar óskir virtust vera um það með þjóðinni, að á þessu máli væri tekið með alvöru og festu, þá er það óskiljanlegt, að hæstv. ríkisstj. skuli leyfa sér að bera slíkt frv. fram, og vil ég undirstrika þau orð, að það er nánast til þess að slá ryki framan í sjávarútvegsmenn.
Vegna þess að hæstv. ríkisstj. hefir ekki viljað ganga lengra en þetta frv. ber vott um, þá tel ég óhjákvæmilegt, að sjálfstæðismenn beri fram annað frv. og taki upp ákveðna og harða baráttu fyrir því hér á hv. Alþ. Ég tel það því nauðsynlegra, þar sem það er vitað, að óskir sjávarútvegsmanna um allt land standa þar að baki þeirra.