17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2423 í B-deild Alþingistíðinda. (133)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Viðvíkjandi síðasta dagskrármálinu, þá hefi ég lofað hv. 6. þm. Reykv., að áður en þingi lýkur skyldi ég reyna að sjá svo um, að það fái þinglega afgreiðslu. Ég mun gera það sem ég get til þess, að það geti orðið.

Viðvíkjandi því máli, sem hv. 6. þm. Reykv. lýsti nú eftir, þá vil ég gjarnan verða við tilmælum hans, ef kostur er fyrir þeim málum, sem eðlilega er ákveðið, að eigi að ganga fyrir á þessu þingi. En ég vona þá, að hv. þm. greiði fyrir afgreiðslu mála og geri ekkert til að tefja þau, svo að sem flest þeirra geti fengið þinglega meðferð. Það er svo með flest málin, sem stjórnin stendur að, að það er eðlilegt, að þau gangi fyrir. Það hefir alltaf verið svo.