23.03.1935
Neðri deild: 36. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (1334)

74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Jóhann Jósefsson [óyfirl.]:

Ég varð að hverfa frá í nokkrar mínútur og heyrði því ekki nema niðurlagið af ræðu hæstv. atvmrh. En ég heyrði þó nóg til að skilja, að hæstv. ráðh. er fús til að athuga málið milli umr., og er ekki nema gott eitt um það að segja.

Svar hæstv. ráðh. við þeirri staðhæfingu minni, að stj.liðið hefði tafið málið á síðasta þingi, var einskonar yfirskotssvar. Gangur málsins er of kunnur til þess, að nokkuð stoði að reyna að afsaka, hvernig meðferð málsins var í höndum hæstv. stj. og hv. meiri hl. sjútvn. á síðasta þingi. Framkoma þeirra í málinu var þegjandi mótþrói, sem oft hefir reynzt notadrjúgur, og reyndist svo þá að minnsta kosti.

Hæstv. fjmrh. var óánægður yfir því, sem ég sagði í gær um þetta mál og hann sjálfan. mér þykir leitt, hafi ég meitt hann. Það ætlaði ég ekki að gera, a. m. k. ekki svo, að um munaði. En mér þykir hann vera orðinn minnislítill á sín eigin orð. Það er að vísu algengt, að menn, sem komnir eru á gamals aldur, tapi minni, en það verður að teljast ófyrirgefanlegt um svo ungan mann, að hann skuli ekki muna sín eigin orð. Hann kvað það hafa verið mest móðgandi í sínum orðum, að hann hafi kallað till. okkar beitu. En hann hefir hvað eftir annað kallað hana fíflskap. Það var þessi framkoma, sem ég kvað bera vitni um litla lífsreynslu, lítinn þroska og því minni menntun.

Þá sagði hann, að ég hefði talið hann sérstaklega fjandsamlegan sjávarútveginum. Þetta sagði ég aldrei. (Fjmrh.: Jú, einmitt!). En ég sagði, að flokkur hæstv. ráðh. hefði sýnt lítinn skilning á málefnum sjávarútvegsins. Vil ég þessu til sönnunar minna hann á frv. til l. um breyt. á l. um fiskveiðasjóð Íslands, á þskj. 56, sem fram er borið af þrem framsóknarmönnum og miðar að því að breyta útiánastarfsemi fiskiveiðasjóðs til hagsmuna fyrir samvinnustefnuna.

Þá gerði hæstv. ráðh. lítið úr þeim mismun, sem er milli þeirra 11 millj. kr., sem veittar eru til kreppulánasjóðs, og 11/2 millj., sem ætlaðar eru til skuldaskila útgerðarmanna. Svo fór hann að reikna og lagði við þessa 11/2 millj. kr., sem á síðasta þingi var helmilað að leggja til markaðsleita o. fl. Fær hann þannig út 21/2 millj. Svo segir hann, að reiðufé kreppulánasjóðs sé ekki meira en 21/2 millj., og vegi því hvorttveggja salt. Væri því í engu gert upp á milli atvinnuveganna. En þarna er samt villa í dæminu, og það hjá jafnreikningsglöggum manni, og má segja um þetta, að skýzt þótt skýrir seu. Það er reyndar nokkuð óviss stærð, sem hæstv. fjmrh. gleymdi. Fyrir utan stofnfé sjóðsins, sem er 21/2 millj. í reiðufé, er ákveðið í l., að ríkissjóður skuli leggja fram það, sem á kunni að vanta. Við þessa upphæð getur þannig bætzt ein eða tvær eða þrjár eða fjórar eða fimm eða sex milljónir. Þegar þessa er gætt, verður útkoma hæstv. ráðh. fremur lítilvæg.

Nei, hér verður ekki fram hjá því komizt, að löggjafarvaldið hefir gert ráðstafanir til þess, að hægt sé að verja allt að 11 millj. til viðreisnar landbúnaðinum, en að stj. er nú á ferðinni með till. um 11/2 millj. króna framlag til sjávarútvegsins.

Ég vil benda á það í þessu sambandi, að þrátt fyrir hið mikla fé, sem stj. kreppulánasjóðs hefir haft undir höndum, hefir hún þó ekki þótt óhlutdræg í veitingu styrkja af blöðum þeim, er styðja hæstv. fjmrh. Sýnist þó sem hún þyrfti síður að vera hlutdræg, með þeim fjárhlut, er hún hefir yfir að ráða. En hugsum okkur, að þessi kreppulánasjóðstj. ætti að tæra 11/2 millj. kr. handa miklum hluta af útgerðarmönnum landsins. Ætli þeir kæmust ekki í nokkurn vanda, jafnvel þótt þeir vildu vera óhlutdrægir?

Ég hefi nú sýnt fram á, að útreikningur hæstv. fjmrh. er rangur og að ásakanir hans um óviðurkvæmileg stóryrði af minni hálfu eru ekki á rökum byggðar.

Ég vona, að hægt verði að ná samkomulagi um einhvern þann grundvöll, er hægt sé við að una, en geti það ekki orðið, verður hæstv. stj. að fara sínu fram, að hverju sem rekur.

Hæstv. fjmrh. minntist á þá 1 millj. kr., sem síðasta þing veitti til leita á nýjum mörkuðum o. fl. Hann taldi stj. þetta til gildis, og skal ég ekki lasta hana fyrir það. Sjálfstæðismenn voru fyllilega samþykkir þessu.

En það er ekki bara þessi heimild, sem til greina kemur, heldur og hitt, hve vel stj. tekst að nota hana til gagns fyrir sjávarútveginn. Ef henni tekst þetta vel, er ekki nema sjálfsagt, að hún hafi af því fullan sóma. En það er öllum kunnugt, að sjálfstæðismenn lögðu ekki nema gott til þessa máls.