03.04.1935
Efri deild: 41. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í B-deild Alþingistíðinda. (1375)
74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda
Frsm. minni hl. (Jón Auðunn Jónsson):
Jafnvel þó ég sé ósamþykkur grundvallaratriðum þessa frv., þá vil ég samt á engan hátt leggjast á móti því, að einhver viðleitni sé sýnd til hjálpar þessari grein sjávarútvegsins. En hitt dylst mér ekki, að eins og frv. liggur nú fyrir, þá er þetta ekki einu sinni sú minnsta hjálp, sem vænta hefði mátt. Það er eins og allir vita þannig komið fyrir sjávarútveginum, að hann hefir verið rekinn um nokkurra ára skeið með árlegu tapi, og það er varla útlit fyrir, að þetta lagist, nema þá með sérstökum aðgerðum, og þá að einhverju leyti með breyt. frá því, sem nú er, fyrst og fremst á þann hátt, að létt verði af þeim miklu tollum og sköttum, sem nú hvíla á sjávarútveginum. Við sjáum, hversu örðugt hefir stefnt hjá okkur í þessum málum, ef við berum aðstöðu þá, sem norskir fiskimenn og útgerðarmenn hafa, saman við okkar eigin kjör. Það mun láta nærri, að við höfum þrisvar sinnum hærri tolla í mörgum tilfellum á þeim nauðsynjavörum, sem útvegurinn þarf frá öðrum þjóðum, og að öðru leyti eru skilyrðin svo óhagstæð sem verða má. T. d. má benda á það, að öll vinna í landi er hér miklu dýrari heldur en hjá Norðmönnum, aðalkeppinautum okkar á saltfiskmarkaðinum. Það hefir verið venja þar um nokkurra ára skeið að þeir, sem ynnu í landi, fengju 25 kr. á viku ásamt húsnæði og fisk til að borða. Af þessu leiðir, að öll framleiðsla sjávarafurða er þar miklu ódýrari heldur en hjá okkur, t. d. hefir þar um langan tíma verið greitt um 32 kr. fyrir að fullverka 1 tonn af söltuðum stórfiski Hér aftur á móti hefir það kostað yfir 100 kr. í flestum tilfellum undanfarin ár. — Það er því sýnilegt, að það þarf hér frekari aðgerða heldur en að létta í bili á útgerðinni þeim skuldum, sem hún með engu móti fær risið undir og sjálfsagt eru tapaðar að meira eða minna leyti, og kannske alveg án skuldaskila.
Ég verð að segja, að það væru allar ástæður til að taka hér með fleiri skip, sérstaklega línuveiðaskip, því á þeim eins og á mótorbátum er það að mestu leyi þannig, að menn eru ráðnir upp á hlut, og það kemur harðast niður á þeim, sem eru ráðnir upp á hlut, af öllum þeim, sem stunda fiskveiðar. En um slíkt er ekki að tala að þessu sinni. Og jafnvel þótt ég álíti, að hér sé skammt farið í því að rétta hjálparhönd, þá vil ég á engan hátt sporna við því, að þessi óverulega viðleitni sé sýnd, en ég tel, að hún komi að sáralitlu gagni og verði til þess, að afarmargir vélbátaeigendur hljóta að verða útundan þessari hjálp, ef ekki er samþ. till. mín um að hækka stofnfé sjóðsins upp í 2 millj. kr. — Ég vænti þess, að hv. d. geti fallizt á þessa litlu hækkun, sem alveg er nauðsynleg til þess að meginþorri útgerðarmanna geti fengið þá lítilfjörlegu hjálp, sem hér er gert ráð fyrir.