03.04.1935
Efri deild: 41. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (1376)

74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Jón Baldvinsson:

Það var svo sem auðvitað, að ekki væri hægt að komast hjá því að ganga inn á þá braut að styðja annan aðalatvinnuveg þjóðarinnar, þegar búið var að veita bændum landsins hina stórfelldu hjálp með kreppulögunum. Þar var gengið inn á braut, sem mér fannst alltaf varhugaverð að fara, að leggja fram úr ríkissjóði fé til þess að greiða skuldir atvinnurekenda, og það í jafnstórum stíl eins og gert var, 10—11 millj. kr. Það, sem ég stakk upp á þá, var, að ríkissjóður legði fram einhverja tiltekna fjárhæð, t. d. 2 millj. kr., til þess að greiða úr verstu flækjunni, en eiga ekki nein eftirköst, sem óhjákvæmilega hljóta að leiða af því, að svo stórfelldar lánveitingar fóru fram, sem ekki er séð fyrir nema svo fari, að ríkissjóður verði að meira eða minna leyti að standa undir innlausn kreppusjóðsbréfanna. Það fer vitanlega eftir ástandinu hjá landbúnaðinum, en því miður lítur svo út nú, að ekki eru miklar ástæður til þess að ætla, að allt komi inn, sem lánað var.

Frá mínu sjónarmiði er dálítið svipað með skuldaskilasjóð vélbátaeigenda, eða skuldaskil fyrir útgerðina yfirleitt, að það er hál braut að fara inn á að binda þannig fé ríkissjóðs, þó ég játi, að þetta, sem hér er um að ræða, sé í engum hlutföllum — miðað við stærð atvinnuveganna — við það, sem veitt var til landbúnaðarins. En samt sem áður er ég ekki sannfærður um, að þetta komi að því gagni, sem til er ætlazt. Það má búast við því, að þær skuldir, sem vélbátaútvegurinn hefir stofnað, séu að mestu leyti tapaðar lánardrottnum. Mér sýnist því, að aðalárangurinn af framkvæmd þessa frv. — sem ég vil á engan hátt setja mig á móti — muni vera sá, að þeir, sem nú eru búnir að tapa skuldum hjá útvegsmönnum, fengju þær að einhverju leyti greiddar með framlagi úr ríkissjóði, og einnig e. t. v. þeir, sem búa til skuldakröfur á útgerðina, eins og mér er ekki alveg grunlaust um, að kunni að hafa verið að einhverju leyti með kreppulánasjóð.

Það hefir gengið svo að undanförnu með vélbátaútveginn og aðra útgerð yfirleitt, að bankarnir hafa framkvæmt þessa uppgerð, sem í raun og veru er ætlað, að skuldaskilasjóðurinn eigi að gera; þeir hafa tekið að einhverju leyti á sig tap og í mörgum tilfellum gengizt fyrir því, að menn fengju eftirgefnar skuldir, þegar um er að ræða menn, sem hafa sýnt sig að því að vera duglegir og treystandi til þess, að halda útgerðinni áfram. En nú skilst mér, að það verði jafnvel gengið lengra í því heldur en gert hefir verið áður að tryggja þá, sem þegar eru búnir að tapa öllum þeim skuldum, sem þeir eiga hjá útgerðarmönnum. Það hefði því að minu áliti verið eins rétt, ef mögulegt hefði verið, að hafa til einhverja fjárhæð eða jafnvel leggja bönkunum til einhverja fjárhæð, sem ríkið líti eftir, hvernig notuð væri, til þess að gera upp þá, sem erfitt eiga og ástæða er til að láta halda áfram útgerð vegna dugnaðar, er þeir hafa sýnt og vegna þess að þeim er trúandi fyrir fé. Því þó allir, sem reka útgerð með tapi, ættu kannske rétt á því skv. frv. að fá einhvern stuðning, þá er ekki víst, að það sé heppilegt vegna þess, hvernig þeim hefir tekizt til með sinn rekstur. Þetta verður því álitamál og verður því að framkvæma frv. á þeim grundvelli að taka tillit til þeirra möguleika, sem menn hafa til þess að standa undir sínum skuldum. — Það er náttúrlega auðveldara að hjálpa bændum, vegna þess að þeir eru þó bundnir við sínar jarðir og ekki auðvelt að selja þær, eins og það er auðvelt að skipta um t. d. eigendur á mótorbátum, því fram að þessu hefir alltaf verið auðvelt að selja góð skip hér á landi, eins og sest á því; að nú síðustu árin hefir verið keypt mjög mikið af skipum frá útlöndum.

Ég ætla ekki að setja mig á móti þessu frv., en ég vildi láta þessar aths. koma fram, til að sýna, hvernig ég lít á málið. Ég geri ráð fyrir, að því hafi verið lofað af hæstv. ríkisstj. að koma málinu áleiðis, og ég býst við að styðja það, þó að ég sé ekki allskostar sannfærður um, að það komi að gagni fremur en kreppuráðstafanirnar til landbúnaðarins. En það er ekki nema eðlilegt með það hörmungarástand, sem nú er hjá mörgum útvegsmönnum, þó að komi fram sterkar óskir og kröfur um stuðning til handa þeim atvinnuvegi, sem leggur mest til ríkisþarfa, og vil ég þó ekki niðra landbúskapnum. En hvort þessar leiðir eru heppilegar, það er ég ekki sannfærður um. Það verður að koma í ljós á næstu árum.

Búast má við, vegna fjárskorts, að grípa verði til að gefa út þau bréf, sem 3. gr. heimilar; Síðar kemur sennilega til ríkissjóðs að greiða eitthvað af þeim skuldabréfum, sem falla á hans ábyrgð, eins og ég geri ráð fyrir, að nokkur hluti af kreppulánasjóðsbréfunum lendi á ríkissjóði.