17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2424 í B-deild Alþingistíðinda. (139)
Afgreiðsla þingmála
Héðinn Valdimarsson:
Ég ætla eins og aðrir þm. að minnast á nokkur mál, sem ég hefi haft hug á, að kæmust á dagskrá bráðlega. Ég nefni fyrst frv. um ríkisframfærslu sjúkra og örkumla manna, sem hæstv. forseti hefir enn ekki látið koma til umr. Þá vil ég minna á annað mál, frv. um ritgerð ríkis og bæjarfélaga, sem ég legg mikla áherzlu á. Þessi tvö stórmál eru flutt af okkur Alþfl.mönnum hér í þessari deild, og vil ég leggja sterka áherzlu á, að þau nái fram að ganga.
Þá vil ég minna á mál, sem nú var, útbýtt nál. um. Það er frv. til l. um ríkisútgáfu námsbóka, og svo mætti halda áfram að telja ýms mál, sem þörf væri á, að gengju áfram. Í þessu sambandi vil ég benda á, að vel gæti verið heppilegast, að þingið héldi áfram störfum fram yfir jól.