18.03.1935
Neðri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (1391)
75. mál, hæstiréttur
Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:
Hv. 2. flm. vildi telja, að lögfræðinganefndin hefði gegnt þeirri skyldu, sem mest reið á, að taka fyrst og fremst til athugunar æðsta dómstól landsins, hæstarétt. En hann reyndi ekki að hrekja eitt einasta orð af því, sem ég sagði um það, hvernig löggjöfin um þennan dómstól varð til, og umr., sem fram fóru þegar hún var samþ. árið 1919, sem sé það, að Alþingi gætti þess í hvívetna að hafa þennan dómstól eins óháðan umboðsvaldinu og frekast var unnt. Hann gat ekki heldur hrakið það, að löggjöfin um hæstarétt er sá þáttur réttarfarslöggjafar okkar, sem er mest moderne og í samræmi við þær reglur, sem gilda um munnlega málafærslu fyrir æðri dómstólum erlendis. Og lögfræðinganefndin gat ekki gengið framhjá því, að henni bar að skila einhverjum ályktunum um, hvernig breyta ætti þeirri málsmeðferð, sem úreltust er hjá okkur, síðan á 17. og 18. öld, sem sé meðferð einkamála í héraði. Ég veit nú reyndar, að þessum hv. þm. og flokksbræðrum hans er ákaflega annt um hæstarétt. Þeir hafa sýnt það nokkrum sinnum, þegar þeir hafa komið með meira og minna svæsnar árásargreinar um hann í blöðum sínum og blandað honum inn í dægurþras og pólitík svo sem þeim hefir frekast verið unnt. Engir hafa eins og flokksbræður þessa hv. þm. og nokkrir menn úr Framsfl. ráðizt á hæstarétt og reynt að gera hann sem tortryggilegastan á alla lund. Mér finnst, að þessir menn ættu því sízt að halda því fram, að þeim væri sérstaklega annt um þennan rétt.
Hv. þm. viðurkenndi út af fyrir sig, að æskilegt væri, að það sætu fleiri en þrír dómarar í réttinum, og taldi þá rétt, að það væru allt fastir dómarar. Ég er honum nú út af fyrir sig sammála um þetta. En ef hann hefir talið það bót 1930, að það skyldu sitja tveir aukadómarar í réttinum, — því er þá ekki eins bót að því nú? Mér skilst, að þær röksemdir, sem hann færði í frv., er hann samdi þá, fyrir því, að fá ætti aukadómara í réttinn, séu engu síður fyrir hendi nú en þá.
Þá vildi þessi hv. þm. telja mönnum trú um, að það væri verulegur munur á því, hvort dómari viki sæti í einstöku máli eða hvort hann forfallaðist um skemmri eða lengri tíma. Ég sé ekki, að svo sé. En hv. þm. hefir orðið að orða frvgr. þannig, að dómari verði að víkja sæti, til þess að það sé hægt að velja dómara til að taka sæti hans frá öðrum en háskólakennurum í lögum. Það er ekki nóg, að dómari verði snögglega veikur eða geti ekki tekið þátt í starfi hæstaréttar sökum fjarveru. Hann verður að víkja sæti, og það gerir hann ekki nema hann sé svo tengdur einhverjum aðila málsins, að hann af þeim sökum verði að víkja úr dómarasæti. Það, sem því liggur á bak við þetta ákvæði, er ekkert annað en það, að algengast er, að dómari viki sæti vegna skyldleika við aðila, og þá getur komið sér vel fyrir ráðh. að hafa rýmri hring til þess að velja úr dómara í slíkum einstökum málum heldur en annars, ef það væru einhver algeng mál, sem ætti að dæma og dómari forfallaðist um lengri tíma.
Hvað dómaraprófinu viðvíkur, þá reyndi þessi hv. þm. ekki að hrekja t. d. það, sem ég sagði, að í þessu frv. væru gerðar strangari kröfur til málaflutningsmanna fyrir hæstarétti heldur en dómaranna sjálfra, sem er mjög svo óeðlilegt. Mér finnst, að annaðhvort hann eða hæstv. dómsmrh. ætti að færa rök fyrir því, hvers vegna ekki má fylgja þeirri sjálfsögðu reglu, að einmitt sá maður, sem dæmir í málunum, sé hæfari til þess en málaflutningsmaðurinn. Ef ég man rétt, þá er annað aldursskilyrði fyrir dómara heldur en málaflutningsmennina, þannig að lögfræðingar geti fyrr aldurs vegna orðið málaflutningsmenn við hæstarétt heldur en dómarar. eins og sjálfsagt er, því í réttinum eiga að sitja eldri og reyndari menn. En hér er þessu alveg snúið við. Það er ekki krafizt hinnar raunverulegu kvalificeringar af dómurunum, heldur aðeins af málafærslumönnunum. Þó hv. þm. segi, að við getum vel unað við það um þetta atriði, sem aðrar þjóðir utan Danaveldis hafa, þá er slíkt engin rök. Ef þetta hefir gefizt vel hjá Dönum og einnig hjá okkur, því þá ekki að halda því? Það kom einu sinni fram í sambandi við fimmtardómsfrv., að æskilegt væri, að dómarar æðsta dómstóls landsins væru valdir af Alþingi, sem sé að dómurinn væri skipaður tómum pólitískum mönnum. Það má náttúrlega hafa margskonar fyrirkomulag á þessum hlutum, en ég hygg, að menn almennt vilji þó ekki hallast að þeirri aðferð til þess að skipa æðsta dómstól þjóðarinnar. Ég hugsa, að menn séu yfirleitt ennþá þeirrar skoðunar, að það beri að hafa æðsta dómstólinn sem óháðastan framkvæmdar- og umboðsvaldinu að unnt er. Það er því víst, að þessi till., sem er komin frá hæstv. dómsmrh., er ekki út af fyrir sig til þess gerð, að það veljist hæfari menn í réttinn, heldur er hún fram komin vegna þess, að sú aðferð, sem hingað til hefir verið viðhöfð, fullnægir ekki þeirri þörf, sem hæstv. ráðh. telur sig hafa á því að skipa í þessi embætti eftir eigin geðþótta. Það er mjög svo hlægilegt, þegar hv. 1. landsk. er að skjóta því fram hér í d., að í reyndinni myndi það verða þannig, að veitingarvaldið mundi skipa hina hæfustu menn í samræmi við till. hæstaréttar. Hann slær þannig föstu, að hæstiréttur geri sínar till. um hina hæfustu menn, og því geti vel farið saman ráðstöfun ráðh. og till. hæstaréttar. Hann dregur ekki í efa, að hæstiréttur geri hinar réttu till., — en því þá ekki að halda sér í öllum tilfellum við þær réttu till.? Það er hlægilegt að heyra hv. þm. halda þessu fram, þegar er rétt búið að lesa grein í hans eigin flokksblaði, þar sem ráðizt er á hæstv. dómsmrh., sem hann sjálfur styður, fyrir mjög vafasama skipun í dómaraembætti. Ég ætla ekki að leggja dóm á þá ráðstöfun, það, sem sumir telja sjálfsagt eða þolanlegt o. s. frv. í þessum efnum, slá oft aðrir föstu, að sé óviðunandi. En viðkomandi ráðh. hefir rétt í þessum svifum fengið harða ádeilu fyrir það, hvaða mann hann skipaði í þetta umrædda embætti, og því verður heldur ekki neitað, að það virðist undarlegt að ganga framhjá miklu eldri og reyndari embættismanni, án þess ég vilji nokkuð fara út í þær ástæður, sem blaðið ber fram. Komi slík dæmi fyrir nú, hvers vegna skyldi það þá ekki geta endurtekið sig, þegar skipa á dómara í hæstarétt? Mér finnst dómsmrh. geti alveg jafnt farið eftir sínum meira eða minna pólitísku ákvörðunum. hvort sem um er að ræða skipun hæstaréttardómara eða undirréttardómara.
Þá minntist hv. þm. á hina opinberu atkvgr. Ég mundi, ef hann væri hér til staðar, benda honum á 52. gr. í fimmtardómsfrv. 1930, þar sem gert er ráð fyrir, að „ráðagerðir og atkvæðagreiðslur fimmtardómsins um mál, er munnlega hafa flutt verið, skulu munnlegar vera“. Í þessari gr. er sem sé gert ráð fyrir, að dómurinn komist að sínum niðurstöðum um úrslit mála fyrir opnum dyrum, að dómararnir ræði opinberlega, hvernig og hvers vegna þeir komist að hinni ákveðnu niðurstöðu í hvert skipti. Þar er ekki um að ræða ráðagerðir, sem dómararnir gera einir eftir að málaflutningi er lokið, heldur ráðagerðir, sem allir eiga aðgang að. Í því liggur hinn mikli munur. Í frv., sem nú liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að þessar ráðagerðir fari fram einslega hjá dómurunum, og það er í fullu samræmi við það, sem nú tíðkast. Mér finnst það illa til fundið hjá hv. þm. að reyna að dylja allan sannleika um það, hvers vegna þetta frv. er fram komið, með því að halda fram, að þetta ákvæði um hina svokölluðu opinberu atkvgr. sé eitthvert höfuðatriði í þessu máli. Ég hygg, að hann geti ekki fengið neinn af þeim, sem um málið fjalla, til þess að fallast á, að það sé nokkurt höfuðatriði. Ég hefi áður bent á, hvert höfuðatriðið í raun og veru er, nefnilega að draga þennan æðsta dómstól þjóðarinnar undir yfirráð pólitísks ráðh. og draga þannig úr höndum hans það óháða vald, sem hann hefir og þarf að hafa, til þess að fella lokadóm í málum manna.