21.03.1935
Neðri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (1417)
75. mál, hæstiréttur
Jakob Möller:
Ég vil bara taka fram, að ég sat hér nokkra stund eftir að fundi var slitið, og frv. barst mér þá í hendur. Skrifaði ég þá á frv., að því hafi ekki verið útbýtt fyrr en eftir fundarslit. Og nú vil ég vekja athygli hæstv. forseta á því, að nú las hann upp einhverjar brtt. við frv., sem útbýtt væri á þessum fundi, en eru ekki komnar enn. Því fremur er ástæða til að láta málið bíða.