22.03.1935
Neðri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1009 í B-deild Alþingistíðinda. (1426)

75. mál, hæstiréttur

Gunnar Thoroddsen [óyfirl.]:

Hv. þm. Barð. færði þá röksemd fram gegn því að afnema 1. einkunnar skilyrðið úr l., að þá myndu hæstaréttarmálaflutningsmenn verða svo margir, að þeir hefðu ekki nægar tekjur til þess að góðir menn fengjust til starfsins. En þetta er aðeins röksemd gegn því, að hæstaréttarmálaflutningsmönnum sé fjölgað um hóf fram. Minn tilgangur er ekki að fjölga dómurum. En ég álít réttara að gera strangari kröfur á öðrum sviðum og miða ekki einungis við einkunnir. Það er líka skilyrði, að menn hafi starfað sem lögfræðingar í þrjú ár, og brtt. gerir ráð fyrir, að menn með 2. einkunn hafi gegnt þessum störfum í sex ár. Þeir eiga auk þess að hafa sýnt hæfileika sína með því að flytja fjögur mál. Það er því misskilningur bæði hjá hv. þm. Barð. og hv. 8. landsk., að ég vilji vinna að því að fjölga hæstaréttarmálaflutningsmönnum. Ég vil aðeins hafa annan mælikvarða en 1. einkunn til að leggja á þetta efni.

Hv. þm. Barð. talaði um, að þetta myndi verða til þess, að hæstaréttarmálaflutningsmenn fengju lægri tekjur, og myndi það koma mörgum þeirra í koll, er nú gegna þessu starfi, og ef til vill mér líka, ef ég legði út á þessa braut. Þar er því til að svara, að það er misskilningur hjá hv. þm., ef hann heldur, að allir þm. láti efnalega hagsmuni ráða afstöðu sinni til málanna.

Þá kvað hv. þm. ástæðu til að gera strangari kröfur til hæstaréttarmálaflutningsmanna en dómara, því að dómarar væru svo fáir, að alltaf væri úr nógu mörgum að velja til að fylla þá tölu. Ég held, að þetta sé einmitt öfugt. Það er alltaf hægt að fá góða menn til að flytja mál í hæstarétti, þó að ýmsir séu auðvitað miður vel til þess fallnir. Loks kvað hann rangt að taka presta til samanburðar í þessu tilliti, því að þeir væru kosnir. En ég sé ekki betur en að þetta sé fyllilega sambærilegt, því að það þarf þó að fullnægja ákveðnum skilyrðum til þess að geta orðið prestur, alveg eins og t. d. alþingismaður. En til þess að maður geti orðið prestur er alls ekki krafizt 1. einkunnar, og er því engu fremur ástæða til að krefjast þess um hæstaréttarmálaflutningsmenn. Enda er það svo, eins og allir vita, að óheppni við próf getur oft valdið því, að menn ná ekki 1. einkunn, þrátt fyrir ágætan dugnað, og er það augljóst ranglæti, að þessum mönnum sé aldrei síðan gefið tækifæri til að vinna af sér þessa óheppni.

Ég bendi á það, að hér er alls ekki verið að rýra öryggi hæstaréttar, því að skilyrði þau, sem sett eru, nægja fyllilega til að tryggja, að málaflutningsmenn við hæstarétt verði aðeins þeir, sem hæfastir eru.

Hv. 8. landsk. sagði, að brtt. okkar væri þannig úr garði gerð, að hún væri nýtt frv. Till. okkar var prentuð upp, því að fyrri hluti hennar féll niður í fyrstu prentun. Ég vísa því þess vegna til baka, að till. okkar sé illa úr garði gerð.

Hv. þm. viðurkenndi, að brtt. væri sanngirnismál, en honum fannst samt ekki ástæða til að fallast á hana. Hann sagði, að við veitingu embætta væri yfirleitt farið eftir prófseinkunnum, og er það rétt. Að öðru jöfnu á að fara eftir þeim og láta hærri einkunn hafa forgang. En það kemur ekki því máli við, hvernig menn snúast við brtt. okkar. Það getur rétt verið, að krafan um 1. einkunn sé oft aðhald við nám í lagadeild. En því vill hv. þm. þá ekki berjast fyrir því, að 1. einkunn verði gerð að skilyrði þess, að menn geti orðið t. d. sýslumenn? Það fær enginn mig til að trúa því, að störf hæstaréttarmálaflutningsmanna séu þýðingarmeiri en önnur lögfræðileg störf hér á landi.

Þá sagði hv. þm., að till. sú frá Málaflutningsmannafélagi Íslands, sem ég minntist á, hefði ekki verið samþ. einróma. í bréfi til Alþingis var sagt, að hún hefði verið samþ. einróma, en það má vera, að hv. þm. hafi greitt atkv. á móti henni.

Þá sagði hv. 8. landsk., að þessi till. þeirra hv. þm. Snæf. væri hliðstæð breytingu þeirri, er gert er ráð fyrir um dómaraskilyrði í frv. því, sem hér liggur fyrir. Þetta er ekki rétt. Í frv. er gert ráð fyrir því, að hæstiréttur verði að mæla með manninum og að hann verði að hafa sýnt sérstaka hæfileika sem fræðimaður í l. eða lögfræðilegum störfum, að áliti hæstaréttar, en eftir brtt. þeirra á lagadeild háskólans að dæma um þetta. Er alveg ástæðulaust að vera að fara út fyrir hæstarétt með þetta.

Annars er þessi till. þeirra lítil breyting frá því, sem nú er, því að lagadeild myndi ekki oft finna ástæðu til að lýsa yfir því, að maður væri sérstaklega vel fallinn til þessa starfa fyrir sakir vísindastarfa, er hann hefði unnið, og yrði það þá a. m. k. sjaldnast fyrr en hann væri kominn á gamals aldur, hefði skrifað sína doktorsritgerð o. s. frv.