22.03.1935
Neðri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (1428)

75. mál, hæstiréttur

Gunnar Thoroddsen:

Hv. þm. Barð. verður tíðrætt um líkinguna við prestana og segir, að hún eigi hér ekki við, en það eru aðeins undanbrögð. Ég nefndi einnig próf lögfræðinga og lækna, og þess vegna álít ég rétt, að það sama gildi um hæstaréttarmálflutningsmenn.

Þá viðurkenndi hv. þm. það, sem ég hefi haldið fram, að sumir málflm. hefðu reynzt illa, og er I. einkunn þar að sönnu ekki örugg. Skal ég taka það fram, að af þeim fáu málflm., sem voru við yfirréttinn, voru menn með 2. einkunn, sem reyndust með beztu málflm. eins og þm. Barð. veit. Vona ég, að hv. þm. Barð. standi við það, að vera hlutlaus og greiða ekki atkv. um brtt.