22.03.1935
Neðri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í B-deild Alþingistíðinda. (1439)
75. mál, hæstiréttur
Bergur Jónsson:
Ég hélt, að það væri meiningin með atkvgr., að þm. fengju að hafa óbundnar hendur um, hvað þeir vilja samþykkja og hvað ekki. Með því að skella báðum þessum liðum saman er hægt að setja suma hv. þm. í klípu með það, hvernig þeir eiga að greiða atkv. Þótt þeir vildu samþ. fyrri liðinn, þá er ekki víst, að þeir vilji samþ. það skilyrði, sem felst í b-liðnum.