06.11.1935
Neðri deild: 66. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2426 í B-deild Alþingistíðinda. (144)
Þingfréttaflutningur í útvarpi
Ólafur Thors [óyfirl.]:
Ég hefði óskað, að hæstv. atvinnumálaráðherra hefði verið viðstaddur og heyrt mál mitt.
Ég vil leyfa mér að beina athygli hæstv. forseta að því, að í sambandi við flutning útvarpsins á þingfréttum hefir nú nýlega komið fyrir mjög leiðinlegt atvik, - atvik sem ég tel í sjálfu sér algerlega óviðunandi, og mælist því til þess, að hæstv. forseti girði fyrir, að slíkt endurtaki sig.
Eins og hv. þdm. mun reka minni til, þegar verið var að ræða um frv. okkar sjálfstæðismanna um afnám útflutningsgjalds af sjávarafurðum, þá greip hæstv. atvmrh. tækifærið til þess, í sambandi við það, að gefa yfirlýsingu um allt annað mál, þ. e. a. s. um 6% gjaldið, sem lagt er á útfluttar sjávarafurðir og rennur til markaðs- og verðjöfnunarsjóðs. Það var mjög óviðfelldið af hæstv. ráðh., að hann undir þessum umr. skyldi koma með slíka yfirlýsingu, þar sem hún var um óskylt mál, og gat það auðveldlega varpað þeim blæ á yfirlýsinguna, að hæstv. ráðh. ætlaði að hafa þetta mál sér og sínum flokkum til pólitísks framdráttar. Yfirlýsingin, sem hann gaf, var sú, að stjórnin og stjórnarflokkarnir hefðu afráðið að leggja fyrir Alþingi frumv. um afnám á 6% gjaldinu. Yfirlýsing þessi gefur það til kynna, að stjórnarflokkarnir hafa verið hér einir að verki, en hæstv. ráðh. vissi vel, að ég og hann sjálfur höfum verið saman að starfi með það fyrir augum að fá þessu gjaldi aflétt. Það var því mjög óviðfelldið, að hæstv. ráðh. skyldi koma með slíka yfirlýsingu. Að vísu má bera fram þær málsbætur, að þegar yfirlýsing þessi var gerð hér í opnu þingi, þá vorum vér sjálfstæðismenn viðstaddir og áttum kost á að taka til máls og skýra frá afstöðu okkar, og gerði ég það líka þá samstundis með skýlausri yfirlýsingu þess, að Sjálfstfl. fagnaði þessum tíðindum, og lýsti því yfir um leið, að ég hefði fyrir flokksins hönd átt samvinnu við hæstv. ráðh. um þetta mál og lausn þess.
En að ég nú minnist á þetta hér og beini orðum mínum um þetta til hæstv. forseta, stafar af því, að nú nýlega barst mér það til eyrna, að þegar fregnin um frv. okkar sjálfstæðismanna um afnám útflutningsgjaldsins var flutt í útvarpinu, þá hafi í viðbót við þá fregn, eins og bar að flytja hana ef hlutlaust átti að vera, verið bætt svo hljóðandi frásögn:
„Samkvæmt tilmælum atvinnumálaráðherra verða eftirfarandi ummæli hans, er fellu við umr. þessa frumv. í dag, lesin hér á eftir:
Í sambandi við umr. í neðri deild í dag um frumv. til laga um afnám útflutningsgjalds af sjávarafurðum, sem nú er samtals 15/8, lýsti atvinnumálaráðherra því yfir, að ríkisstj. hefði ákveðið, í samráði við stjórnarflokkana, að leggja fyrir Alþingi frumv. til lags um afnám gjalds til markaðs- og verðjöfnunarsjóðs, að mestu eða öllu leyti. Gjald þetta er nú 6% - sex af hundraði - samkvæmt lögum nr. 75 29. des. 1934“.
Þetta tiltæki hæstv. ráðh. sannar alveg ótvírætt, að hann hefir haft ákveðinn tilgang með því að láta þessa yfirlýsingu falla undir þessum umr., nefnilega þann, sem ég áðan gat um, að suma hefði þá strax grunað, að eigna sér og sínum flokki á óheiðarlegan hátt sérafstöðu um þetta mál. Það er beinlínis vítavert, að sá ráðh., sem hefir yfirstjórn útvarpsins, skuli þannig nota aðstöðu sína til þess að læðast aftan að okkur sjálfstæðismönnum með því að telja hlustendum úti um land trú um, að stjórnin og stjórnarflokkarnir hafi aðra afstöðu til þessa máls heldur en við sjálfstæðismenn. Þetta er því vítaverðara um útvarpið heldur en yfirlýsingu hans í þessari hv. d., vegna þess að á þeim vettvangi höfum við enga aðstöðu til að verja okkur, og ég geri ráð fyrir, að þó Sjálfstfl. tæki til athugunar og ákvæði, hvað hann vildi fá birt, þá væri óvíst, hvort hann fengi vilja sinn í því efni. En hitt getur verið, að það, að ég tala hér um þetta, verði til þess að þetta komi síður fyrir aftur.
Ég vil leyfa mér að beina því til hæstv. forseta Alþ., þó ég viti, að þeir hafa neitað að taka ábyrgð á flutningi þingfrétta í útvarpinu, að við gerum kröfu um það, að útvarpinu verði ekki beitt á þennan hátt, og allra sízt af þeim manni, sem telst yfirmaður þessarar hlutlausu stofnunar.
Ég óskaði eftir því í upphafi ræðu minnar, að hæstv. atvmrh. væri hér viðstaddur, af því ég vildi gefa honum tækifæri til að taka þátt í þessum umr., og nú vil ég segja það, að úr því hæstv. ráðh. gat haft geð í sér til þess að smeygja þessari yfirlýsingu sinni inn í útvarpsfréttirnar, þá bar honum einnig skylda til að beina athygli útvarpsins að því, að sjálfsagt væri að birta mín ummæli um leið. Mín ummæli voru jafnskýr og ummæli hæstv. ráðh. Þau hljóðuðu þannig, með leyfi hæstv. forseta:
Frá þingbyrjun hafa staðið yfir samningar milli Sjálfstfl. og stjórnarflokkanna um að létta af sjávarútveginum hinu þungbæra 6% gjaldi, sem allt þingið lagði á útveginn í fyrra. Allir hafa verið á einu máli um, að þetta væri eigi aðeins æskilegt, heldur og brýn nauðsyn. Hæstv. ráðh. hefir nú lýst yfir því f. h. stjórnarfl., að þeir fyrir sitt leyti samþykki að létta af gjaldinu. Sjálfstfl. er eins og ríkisstjórninni er kunnugt, þessu samþykkur, og má þá eftir yfirlýsingu atvinnumálaráðherra telja tryggt, að þessum skatti verði aflétt. - Sjálfstæðismenn fagna þessum tíðindum.
Um leið og ég ámæli hæstv. ráðh. fyrir framkomu hans í þessu máli, þá ámæli ég líka útvarpinu fyrir að hafa látið fá sig til slíks fréttaflutnings, þó sjálfsagt megi því til málsbóta færa það, hvaðan skipunin kom.
Að lokum vil ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh, hvort hann sé mér ekki sammála um það, að ef hlutlausri stofnun bar skylda til að birta hans ummæli, þá hafi henni líka borið skylda til að birta mín um leið.