22.03.1935
Neðri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1014 í B-deild Alþingistíðinda. (1443)
75. mál, hæstiréttur
Bergur Jónsson:
Vegna þess að ég er raunverulega meðmæltur fjölgun dómenda í hæstarétti, þá vil ég ekki samþ. þetta ákvæði. Ég vil ekki láta það vera komið undir duttlungum fjárveitingavaldsins, hversu margir dómarar hæstaréttar eru. Greiði ég því atkv. gegn þessari till. og segi nei.
Frv., svo breytt, samþ. með 17:14 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu
já: SigfJ, SE, StJSt, ÞorbÞ, BJ, BÁ, BB, EmJ, EystJ, FJ, GG, HV, JG, MT, PZ, PÞ, JörB.
nei: PHalld, PO, SK, TT, GÞ, GÍ, GTh, HannJ, JakM, JJós, JÓl, JónP, JS, ÓTh.
Tveir þm. (ÁÁ, GSv) fjarstaddir. Frv. afgr. til Ed.
Við nafnakallið um frv. gerðu 2 þm. grein fyrir atkv. sínu á þessa leið: