06.11.1935
Neðri deild: 66. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2428 í B-deild Alþingistíðinda. (145)
Þingfréttaflutningur í útvarpi
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:
Ég verð nú að segja það, að þótt ég hafi hlustað á ræðu hv. þm. G.-K., þá er ég því nær jafnnær um það, hver tilgangurinn hefir verið með flutningi þessarar ræðu. Mér skildist helzt, að það hefði verið yfirlýsing, sem birt hefði verið í útvarpinu eftir mér sem atvmrh. í sambandi við umr. um frv. sjálfstæðismanna um afnám tilflutningsgjalds af sjávarafurðum, sem olli þessum ræðuflutningi.
Hv. þm. G.-K. var með ýmsar þær fullyrðingar í ræðu sinni, sem mér komu ókunnuglega fyrir. Hann sagði, að ég hefði verið að læðast aftan að Sjálfstfl. á óheiðarlegan hátt; og þessi aftanaðlæðingur var þá í því fólginn, að ég á opnum fundi hér í Alþingi gaf opinbera yfirlýsingu um ákvörðun stjórnarflokkanna í ákveðnu máli, og áframhald aftanaðlæðingsins var svo það, að útvarpið birti þessa yfirlýsingu mína orðrétta. Það er rétt, að útvarpið flutti yfirlýsingu þessa að beiðni minni, því ég taldi það sjálfsagt, að hana ætti að birta, og að ég eigi að sæta ámæli fyrir það, er mér óskiljanlegt. Ég skil ekki hugarástand þess manns, sem ámælir mér fyrir það eða telur mig vera að læðast aftan að nokkrum með því að gefa slíka yfirlýsingu hér í hv. deild og láta síðan birta hana í útvarpinu.
Það, sem hv. þm. sagði, að ég vissi, að við hefðum staðið saman um að afnema gjaldið til markaðs- og verðjöfnunarsjóðs, var ofmælt. Það er rétt, að hv. þm. G.-K. hafði sagt mér frá frumv., sem sjálfstæðismenn hefðu í smíðum, en því fer fjarri, að ég eigi nokkurn þátt í því frv. eða hafi hagað mér eftir hví. Ég beinlínis sagði honum, að ekki kæmi til mála, að við stjórnarflokkamenn gætum fallizt á frv. á þskj. 458. Ég vil nota tækifærið til að benda hv. flutningsm. á, hve þægilegt myndi vera að fallast á og samþykkja þá greinargerð, sem því frv. fylgir. Þar stendur á bls. 2, að þingflokkur sjálfstæðismanna væri samþ. aðalefni frv. og að formaður flokksins hefði rætt það við atvinnumálaráðh. og hann tekið líklega í málið. Sé hér ekki um vísvitandi ósannindi að ræða, þá er það svo herfilegur misskilningur, að hann er lítt skiljanlegur. Ég hefi alltaf frá byrjun þessa máls talið ókleift fyrir ríkissjóð að standast þau útgjöld, sem fyrir hann leiddu af frv. þessu, ef það gengi í gildi, og ummæli greinargerðarinnar um þetta efni eru því hreinn og beinn tilbúningur. Sama er að segja um það, sem þar er sagt um hið mikla fylgi þess hjá stjórn sambands ísl. fiskframleiðenda. Það er rétt, að þetta var borið undir stjórn sambandsins. En mér er sagt, að þetta mikla fylgi, sem það fékk þar, hafi verið á þann hátt, að því hafi verið vísað frá. Það er ekkert á móti því að segja, þó menn hafi skáldskapargáfu í ríkum mæli, en hún ætti ekki að koma fram í prentuðum þingskjölum, sem síðan eru lesin upp í útvarpi sem heilagur og ómengaður sannleikur. Þessu vildi ég gera grein fyrir í sambandi við þetta mál, úr því form. Sjálfstfl. gaf tilefni til þess.
Þá beindi hv. þm. G.-K. að lokum þeirri fyrirspurn til mín, hvort ég væri ekki sammála um það, að fyrst mín ummæli hefðu verið birt í útvarpinu, þá hefði verið skylda að birta hans ummæli um leið. Á það skal ég engan dóm leggja. Auðvitað hefði ég ekkert haft á móti því, þó ummæli hans hefðu verið birt, en þá kemur það til athugunar, hve mikið á að „referera“ úr ræðum þingmanna almennt. Hinsvegar má hann ekki gleyma þeim aðstöðumun, sem er á ráðherra og óvöldum þingmanni.