30.03.1935
Efri deild: 38. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)

75. mál, hæstiréttur

Magnús Guðmundsson:

Hv. 2. þm. S.-M. vildi ekki viðurkenna, að n. hefði játað formgalla á frv. eins og það kom frá Nd. Mér kemur þetta á óvart, því ég gat ekki skilið hann og meiri hl. n. öðruvísi en að þeir viðurkenndu að gallar væru á frv., en að þeir vildu samþ. frv. óbreytt þrátt fyrir gallana. Hv. þm. sagði, að ég hefði nefnt dæmi úr 15. gr. Það er ekki rétt, ég nefndi 17. gr. Þar stendur, að eftir 48. gr. komi ný gr., sem verði 49. gr. Þetta getur ekki staðizt. þetta var rétt í frv. eins og það kom frá flm. þess, en svo við það, að ein grein er klofin í tvennt þá gerist það, að einni gr. fleira verður á undan þessari gr. Þar af leiðandi er ekki hægt fyrir þá, sem setja saman lögin, að uppfylla ákvæði 17. gr., þannig að sú gr. verði 49. gr., sem frv. segir, að eigi að vera það, heldur verður hún 50. gr.

Það er ekki til mikils mælzt, þó að farið sé fram á að leiðrétta þetta misræmi, svo að greinatalan verði rétt. En þetta er það, sem ómögulega má, að dómi hv. meiri hl.

Skal ég svo ekki segja meira um 1. og 2. gr. l. eins og þau eiga að verða. En ég held fast við það, að það sé mjög óviðkunnanlegt á árinu 1935 að gefa út lög, sem mæla svo fyrir, að stofna skuli hæstarétt á Íslandi, þar sem hæstiréttur er búinn að starfa hér í 15 ár, og lög, sem sömuleiðis mæla svo fyrir, að hæstiréttur Danmerkur skuli ekki vera lengur æðsti dómstóll í íslenzkum málum og að landsyfirréttur skuli lagður niður, þar sem hvorugur þessara dómstóla hefir starfað hér síðustu 15 árin. Og úr því að leiðrétta þurfti tilvísanir í l., þá var útlátalítið að leiðrétta þetta.

Hv. þm. sagði, að l. öll væru frá 1919, þau væru gefin út sem lög frá 1919. En það er ég búinn að margbenda hv. þm. á, að svo er ekki. Ég sýndi honum fram á það með skírskotun til Stjtíð., að lög, sem konungur skrifar undir þannig, að undirskriftin er dagsett á árinu 1935, þau hljóta óhjákvæmilega að verða l. frá 1935, en geta alls ekki verið l. frá árinu 1919. Eftir þann dag, sem þessi l. verða þannig undirskrifuð, nefnilega nú á þessu ári, verða lögin um þetta efni frá 1919 ekki lengur til.

Hv. þm. viðurkenndi nú, að það gæti verið álitamál, hvort ekki væri rétt að semja upp öll l. um hæstarétt frá 1919 í eina heild. þetta er einmitt það, sem ég hefi verið að segja, að væri réttara. Það þurfti að fella úr l. ákvæði, sem nú eiga ekki lengur við, svo sem það, að landsyfirréttur skuli afnuminn, sem fyrir löngu er gert, o. s. frv. Þetta er nú það, sem ég fór fram á í n.

Það var engin ástæða til fyrir minni hl. í n. að fara inn á stefnuatriði frv., því að meiri hl. n. sagði, að ekki væri um að ræða neinar breyt. á þessu frv., það yrði að fara í gegn með þeim formgöllum, sem á því væru, því þeir töldu þá ekki svo mikilvæga, að þeir hindruðu að hægt væri að setja saman lögin þrátt fyrir þá. En ég hefi bent á, að það er ekki unnt að fylgja fyrirmælum frv. um að setja 17. grein þess inn á eftir 48. gr. l. án þess að greinatalan breytist við það. Það er þess vegna ekki til neins fyrir hv. þm. að flagga með nafn Einars Arnórssonar í þessu sambandi, því að þessi villa hefir komið inn við meðferð málsins í Nd. Getur slíkt verið alveg afsakanleg óaðgæzla og er ekki nema það, sem vill til mjög oft. Og ég var reyndar hissa á því, að einmitt hv. 2. þm. S.-M. skyldi halda því fram, að hægt væri að fella frv. þetta og lögin frá 1919 saman, því að í n. kom það fyrir í öðru máli, að þessi hv. þm. tók eftir því, að lagabreyt. gat ekki fallið inn í eldri l. af svipuðum ástæðum og hér er um að ræða, og þá var það einmitt þessi hv. um., sem tók það ráð, sem skynsamlegast var, að hætta við þessa samfellingu, og var gott samkomulag um það.

Þá var það dómaraprófið. Hv. þm. hélt því fram, að það hefði ekki mikið að segja og spurði, hvort það hefði nokkru sinni verið notað. Í fyrsta skipti þegar dómurinn var settur á stofn, var ómögulegt að viðhafa dómaraprófið, því að hver ætti þá að dæma? Áttu hinir nýskipuðu dómarar að dæma um sjálfa sig? Það var auðvitað ekki hægt að nota dómaraprófið, þegar dómurinn var fyrst settur á stofn, því þá var enginn til þess að dæma. Síðan hafa ekki orðið dómaraskipti nema alls einu sinni í réttinum, og þá kemur inn í réttinn maður, sem búinn er þegar að dæma í mörgum tugum mála, m. o. o. er búinn að leysa af hendi margfaldlega þetta dómarapróf.

Þá breiddi þessi hv. þm. sig talsvert út yfir það, að ég hefði verið að leggja fyrir sig margar spurningar, og hv. þm. let skina í það, að ég hefði verið með málfærslukróka og ætlað að koma honum í ófærur. Þetta er alls ekki rétt. En ég vildi fá fram frá þessum hv. þm. og hv. 4. landsk. um. með fyrirspurn minni viðvíkjandi 22. gr. frv., hvernig þeir skildu þetta ákvæði um tölu dómaranna. Þeir svöruðu því, að þeir álitu, að eftir að búið væri að veita fé einu sinni á fjárl. til 5 dómara, þá væri þetta ákvæði laganna í 1. gr. frv. um 5 dómara gengið í gildi og þá yrði þessi dómaratala að gilda áfram. Með þessu svari hefi ég fengið það, sem ég vildi fá með þessari fyrirspurn. En ég er í vafa um, að þetta sé rétt, eftir því sem frv. er orðað, sérstaklega með tilliti til ákvæða 2. gr., þar sem tekið er fram, að með konunglegri tilsk. skuli ákveða, hvenær settur skuli dómur með 5 dómendum. Ég vil skilja þetta ákvæði 2. gr. þannig, og skoða það samþ., ef enginn mótmælir því, að með þessari konunglegu tilsk. sé átt við það, að rétturinn sé nægilega mannmargur, þó að ekki séu nema þrír dómarar í honum, nema í málum, sem upp séu talin í þessari konunglegu tilsk.

Þá var það og, að hv. þm. sagði, að dómstólarnir væru allir háðir framkvæmdarvaldinu, nema hæstiréttur. Það var einmitt það, sem ég sagði. En stjskr. gerir ráð fyrir þrískiptu valdi, dómsvaldi, löggjafarvaldi og umboðsvaldi. Við erum nú ekki komnir lengra í þessari skiptingu en það, að við höfum sett þennan hæstarétt, sem á að vera óháður. (IngP: Næsta sporið verður, að við kjósum alla dómara í landinu, svo að þeir verði óháðir umboðsvaldinu). Ég veit ekki, hvað næsta sporið verður í því efni, og hygg ég, að ósköp lítið sé um það vitað. Ég ætla a. m. k. ekki að gerast neinn spámaður um það. En hér er um að ræða spor aftur á bak, að hverfa af þeirri braut, sem lagt var út á eftir stjórnarbyltinguna í Frakklandi 1789 og síðan hefir verið farin í flestum löndum álfunnar, þar sem reynt hefir verið að keppa að því að gera dómstólana sem óháðasta. En við höfum bara ekki getað komizt lengra en gera okkar hæstarétt óháðan, af því að okkar staðhættir eru þannig, að við erum fámennir og dreifðir um stórt land. En nú á sem sagt að taka sporið aftur á. bak og gera hæstarétt háðan framkvæmdavaldinu.

Þá var það hv. 4. landsk. Hann byrjaði sína ræðu með því að segja, að hann héldi, að ég hefði eitthvað vonda samvizku út af mínum brtt., af því að ég ætlaði ekki að láta þær koma til atkv. nú við þessa umr. Þetta er misskilningur. Ég gerði þetta af því, að ég skildi hv. þm. þannig, að hann ætlaði að neita um afbrigði fyrir þær. Annars hefði mér verið sama, þótt brtt. kæmu til atkv. nú. En af því að ég af nefndum ástæðum ákvað að fresta þeim til 3. umr., þá held ég fast við það. Ég trúi því náttúrlega, þegar þessi hv. þm. segir, að hann mundi hafa greitt atkv. með afbrigðum um brtt. mínar. En ég missti alveg trúna á honum, er hann sagði, að hann væri ráðinn í að greiða atkv. á móti öllum brtt. Það skiptir þennan hv. þm. engu, þótt brtt. mínar séu sumar alveg nauðsynlegar til þess að frv. verði ekki þinginu til hneisu af formsástæðum. Hann er, eins og allur stjórnarflokkurinn, staðráðinn í því að samþ. frv. breytingalaust.

Hv. þm. sagði, að rétturinn væri orðinn úreldur og að hann útnefndi sig sjálfur. Það er með öllu rangt, að dómurinn útnefni sig sjálfur. Eftir því fyrirkomulagi, sem nú er, þarf samkomulag á milli réttarins og dómsmrh. um það, hver verði dómari, og báðir hafa þar neitunarvald. Og ég get ekki séð, að hægt sé að búa betur um þennan æðsta dómstól okkar en með því að heimta, að dómsmrh. og dómstóllinn skuli vera sammála um val dómara og að á meðan ekki næst samkomulag um það, þá séu kennarar lagadeildar háskólans sjálfkjörnir varadómarar í réttinum. Breyt. með frv. í þessu efni sú, að leggja þetta vald um val dómara algerlega í hendur dómsmrh., og það verður auðvitað til þess að minnka sjálfstæði réttarins, en ekki til þess að auka það. Það sjá allir. Það er mjög algengur misskilningur þetta, sem kom fram nú, einmitt hjá hv. 4. landsk., að rétturinn útnefndi sig sjálfur.

Hv. 4. landsk. sagði líka, að fyrirkomulag þetta um útnefningu dómara væri algerlega úrelt. En ég vil benda honum á, að í Danmörku er þetta ákvæði enn í gildi. Það þykir ekki úrelt þar. Einmitt sú stjórn, sem nú situr þar, hefir komið fram með till. til breyt. á l. um hæstarétt þeirra, en ekki hreyft við þessu ákvæði. (JBald: Það er svo margt, sem þeir eiga eftir að breyta þar ennþá). Ég hélt, að hv. 4. landsk. bæri svo mikið traust til stjórnarinnar í Danmörku, að hann áliti, að ef nauðsyn væri á að breyta þessu ákvæði, þá mundi hún hafa gert það. (JBald: Það getur verið annað ennþá nauðsynlegra til fyrir þá að sinna. Þeir berjast t. d. um nafn á Landsþinginu. Það eru fornminjar eins og þetta). Landsþingið kemur ekki þessu máli við, en Dönum dettur ekki í hug að hrófla við þessum fornminjum í hæstaréttarl. sínum, enda undarlegt, ef afnema á gott ákvæði einungis vegna þess að það er gamalt.

Um fjölgun dómaranna viðurkenni ég það, að ég tel meira öryggi í því, að dómarar séu 5 heldur en 3. En mér virðist, eins og frv. er orðað nú, að þar sé aðeins um von að ræða um þá fjölgun, en ekki vissu. Ég álít því hæpið að telja þetta út af fyrir sig kost á frv.

Þá vildi hv. 4. landsk. koma því að í ræðu sinni að líkja hæstarétti við steingerving. Á hverju byggir hv. þm. þessi ummæli? Nýlega er kominn einn maður í réttinn og á allra næstu tímum hljóta hinir tveir, sem í réttinum eru, að fara úr honum. Svo að það koma nú um þessar mundir nýir menn í öll dómarasæti í réttinum. Hvar er þá þessi steingervingsháttur? (JBald: Í fyrirkomulaginu sjálfu). Ég get ekki séð, að neinn steingervingsháttur sé í því fyrirkomulagi, að rétturinn og dómsmrh. skuli þurfa að verða sammála þegar skipaður er nýr dómari í réttinn. Hv. 4. landsk. sagði, að sér þætti gott að geta náð í pólitískan ráðh. til að skamma hann fyrir veitingu á þessum embættum, ef illa tækist til. Það væri kannske synd að taka þessa ánægju frá hv. þm. En ég vil benda honum á, að ráðh. skipar dómarana hvort sem er, en þarf aðeins samþykki réttarins um veitinguna, svo að það er í lófa lagið fyrir hv. 4. landsk. að veita sér þá ánægju að skamma dómsmrh., ef honum líkar eitthvað illa við hann út af þessum hlutum. (JBald: Nei, dómsmrh. er skyldur til að skipa þann, sem hæstiréttur tilnefnir). Nei, það er alls ekki. Hvar stendur það? Það stendur vitanlega hvergi. Um þetta fer þannig, að þegar hæstiréttur tiltekur einhvern sem dómaraefni, þá getur dómsmrh. sagzt ekki vilja skipa hann, heldur verði einhver annar að taka dómarapróf. (JBald: Þeir geta þannig fellt alla). Afleiðing af því verður þá sú, að einhver prófessor við lagadeild háskólans verður dómari á meðan því fer fram.

Þá ræddi hv. 4. landsk. að síðustu um, að ekki þyrfti lögfræðinga til að sjá, hvað rétt væri að ákveða í þessu máli, nema um formsatriði. Hinir væru jafnfærir til að dæma um efni frv.

Ég hefi aldrei haldið því fram, að lögfræðingar einir væru dómbærir um stefnu þessa frv. (JBald: Ég sagði, að gott væri að hafa þá með, til leiðbeiningar, en nauðsynlegt væri það ekki). Hv. þm. sagði, að nauðsynlegt væri að hafa þá með til leiðbeiningar um formsatriði, en hann má vitanlega taka þau orð aftur, ef hann vill; mér er það alveg að meinalausu. Ég hefi nú bent hér á formsatriði, sem ég veit, að stjórnarstuðningsmenn skilja, að er á rökum byggt; það þarf að breyta tilvísun í greinar á sumum stöðum. Það er ekki hægt, eins og frv. er útbúið, að fella það inn í l. eins og ætlazt er til að gert verði. Þetta er formsatriði, en samt sem áður vill stjórnarflokkurinn ekki leiðrétta þetta. Ég get ekki skilið, að ekki hefði verið hægt, ef að því hefði verið undið strax, að koma frv. í gegn á þessu þingi eða þinghluta eins fyrir því, þó að þetta hefði verið leiðrétt. Svo geta komið til greina fleiri formsatriði og deiluatriði í sambandi við þetta frv. En ég læt bíða til 3. umr. að ræða þau í sambandi við mínar brtt. Meining mín með þessu er ekki að taka upp málþóf um þetta mál. Það hefi ég aldrei gert í þingi og mun aldrei gera.