01.04.1935
Efri deild: 39. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1047 í B-deild Alþingistíðinda. (1463)

75. mál, hæstiréttur

Ingvar Pálmason:

Ég stend upp til þess að mótmæla staðhæfingu hv. 1. þm. Skagf. Hann sagði, að það hefði komið fram hjá meiri hl. allshn., að hæstv. stj. gerði það að skilyrði, að frv. væri samþ. óbreytt af stjórnarflokkunum. Þessi yfirlýsing hefir aldrei verið gefin, hvorki í n. eða d. Hitt benti ég á, að það væri ekki hættulaust að breyta frv., ef það ætti að geta orðið að lögum áður en þingfundum er frestað.

Því, sem hv. 1. þm. Skagf. talaði um brtt. sínar, sé ég ekki neina ástæðu til að svara f. h. meiri hl. þessar brtt. voru fullræddar af hálfu meiri hl. við 2. umr., bæði af mér, hæstv. dómsmrh. og hv. 4. landsk., og sé ég ekki ástæðu til að fara að endurtaka við þessa umr. þær ástæður, sem þá voru fram færðar gegn þeim, þó hv. 1. þm. Skagf. fyndi ástæðu til, eins og hann sjálfur viðurkenndi, að endurtaka hér sína ræðu frá fyrri umr.