14.03.1935
Neðri deild: 28. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í B-deild Alþingistíðinda. (1474)

78. mál, stofnun atvinnudeildar við Háskóla Íslands

Thor Thors:

Það er rétt, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, að það varð ekkert samkomulag um þetta frv. í allshn. En það var ekki af því, að við hv. 8. landsk. séum andvígir þessu máli, þvert á móti. Við viljum, að það sé komið upp við háskólann sem fullkomnastri rannsóknardeild fyrir atvinnuvegina, með víðtækari kennslukröftum en þetta frv. gerir ráð fyrir. Þess vegna berum við fram annað frv., sem við álítum, að nái betur þeim tilgangi, sem upphaflega vakti fyrir frumherjum þessa máls og flm. þess á síðasta þingi, er vildu efla háskólann sem mest og gera stúdentum fært að stunda þar nám á fleiri sviðum en kostur hefir verið á hingað til. Ég skal svo ekki ræða það atriði meira að sinni; ég mun flytja mína aðalræðu um þetta mál við framsögu þess frv., sem hér er næst á eftir á dagskránni.

En hins vil ég geta, að það er ekki alveg rétt frá skýrt hjá hv. 2. þm. Reykv., að háskólaráðið hafi fallizt á frv. meiri hl. allshn. Þó mun það hafa verið barið í gegn, að 3 menn af 5 sem eru í háskólaráðinu, féllust á það, en 2 voru á móti því. Hinsvegar get ég upplýst það, að allir prófessorar lagadeildarinnar og guðfræðideildarinnar hallast fremur að því frv., sem við hv. 8. landsk. flytjum og ennfremur nokkrir af prófessorum læknadeildar og heimspekideildar háskólans.

Ég vil nú mælast til þess, að hv. 2. þm. Reykv. sýni svo mikinn rannsóknarhug í þessum málum, að hann sem form. allshn. gangi inn á það, að n. fái þetta frv. til nánari athugunar og meðferðar ásamt frv. okkar hv. 8. landsk., sem hér er næst á dagskánni, og að bæði frv. verði borin undir alla prófessora háskólans í heild, svo að Alþingi fái að vita um afstöðu þeirra til málsins skýrt og ótvírætt, og að því verði ráðið til lykta með fullu samkomulagi við háskólann. Það hefir jafnan verið svo um málefni háskólans, að þó þau hafi átt erfitt uppdráttar á Alþingi, þá hafa þau ekki verið gerð að flokksmálum á þinginu. Enda teldi ég það illa farið, ef þeim tillögum, sem nú liggja fyrir um aukningu á starfsemi háskólans, yrði blandað inn í flokkadeilurnar.

Ég mun því ekki fara út í einstök atriði í ræðu hv. 2. þm. Reykv., enda snerta þau hinar einstöku greinar frv., sem ég get athugað nánar við 2. umr.

Ég geri það að till. minni, að þessu frv. verði aftur vísað til allshn., og vil vænta þess, að hv. 2. þm. Reykv. verði svo sanngjarn, að hann geti fallizt á það. Hann er form. n. og getur í sambandi við hæstv. forseta haft áhrif á það, að slík meðferð yrði ekki til að tefja málið að óþörfu.