02.04.1935
Efri deild: 40. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1086 í B-deild Alþingistíðinda. (1512)
78. mál, stofnun atvinnudeildar við Háskóla Íslands
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Þetta mál hefir legið fyrir allshn., og hefir hún afgr. það eins og sjá má á nál. á þskj. 308. Meiri hl. er sammála um að mæla með, að frv. nái fram að ganga, með þeim fyrirvara, sem þar er tilgreindur, að einstakir nm. eru óbundnir af brtt., sem fram kynnu að koma, en ekki hafa komið fram aðrar brtt. en frá minni hl., hv. 1. þm. Skagf. Er mér óhætt að lýsa því yfir, að a. m. k. 3 af meiri hl. eru þeirri brtt. mótfallnir.
Mál þetta er þannig lagað, að óþarfi er að halda langa ræðu um það á þessu stigi. Grg. er ýtarleg, eins og sjá má á því þskj., þar sem málið er flutt. Og eftir því, sem bezt verður séð, þá er ágreiningurinn ekki um það, að rannsóknarstofnunin eigi að komast á, heldur er ágreiningurinn um form hennar á byrjunarstiginu, og eftir því, sem bezt verður vitað, þá mun skipulagsn. atvinnumála hafa verið búin að ganga svo frá þessu máli við háskólaráðið, að þar var fengið fullkomið samkomulag um, að málið skyldi verða flutt eins og það liggur nú fyrir. Að vísu hefir n. og fleiri orðið þess áskynja, að innan háskólans ríkja einnig aðrar skoðanir um þetta, en hvað því veldur, ætla ég ekki að fara út í, en hinsvegar getum við í meiri hl. ekki séð, að þær kröfur, sem nú eru bornar fram af hálfu háskólans, séu þess eðlis, að við getum fallizt á þær. Með frv. er ætlazt til að stíga sporið skemmra en eftir þeim brtt., sem hafa verið bornar fram á þskj. 313 og eru orðréttar þær brtt., sem háskólaráðið hefir sent til allshn.
Ég tel svo ekki ástæðu að orðlengja meira um frv. á þessu stigi, og a. m. k. f. h. okkar þriggja legg ég til, að frv. verði samþ. óbreytt.