04.04.1935
Neðri deild: 45. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1112 í B-deild Alþingistíðinda. (1607)
106. mál, eftirlit með skipum
Frsm. (Páll Þorbjörnsson):
Eins og grg. ber með sér, er frv. þetta flutt af sjútvn. Ed. eftir beiðni atvmrh. Aðalorsök þess, að frumv. er fram komið, er sú, að alþjóðasamþykktir hafa verið settar um öryggi mannslífa á sjónum, og hefir nú frv. þetta verið samið til þess að samræma ákvæði íslenzkra laga við fyrirmæli þeirra. Þetta frv. er búið að ganga í gegnum Ed. mótmælalaust, og sjútvn. Nd. hefir tekið það til meðferðar og leggur til, að það verði samþ. óbreytt. Einn nm. skrifaði undir með fyrirvara og sagðist ekki vera búinn að kynna sér málið nægilega og vildi nota sér þennan tíma til þess. Mun hann nú, ef hann hefir rekizt á nokkra annmarka á frumv., gera grein fyrir því. — Ég vonast eftir, að þetta frv. fái sömu afgreiðslu í þessari hv. d. eins og það fékk í hv. Ed., og ég vil leggja áherzlu á, að það nái fram að ganga áður en þingi er frestað.