10.10.1935
Sameinað þing: 13. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2444 í B-deild Alþingistíðinda. (164)
Rannsókn kjörbréfs
Frsm. (Pétur Magnússon):
Nefndin hefir haft til athugunar kjörbréf Eiríks Einarssonar. 1. varaþm. Sjálfstfl. Upplýsingar liggja fyrir um það, a) hv. 11. landsk. verður fjarverandi þetta þing, en hann hefir skipað uppbótarþingsæti fyrir Sjálfstfl. Kjörbréfanefnd hefir því orðið sammála um að leggja til, að kjörbréf Eiríks Einarssonar verði tekið gilt og honum veittur réttur til þingsetu.