07.11.1935
Efri deild: 63. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1125 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)
119. mál, kjötmat o.fl.
Þorsteinn Briem [óyfirl.]:
Það kemur manni dálítið einkennilega fyrir, að úr stóli hæstv. forsrh. skuli heyrast rödd í þá átt, að ekki sé nein bót að því að tryggja betur samræmi á kjötmatinu, nema síður sé. Þegar lögin um fiskimálastjóra voru hér fyrir hv. Alþingi, lögðu allir þeir, sem þar áttu hlut að máli mesta áherzlu á, að það, sem skipti þar mestu máli, væri einmitt samræmið í matinu, þannig að menn gætu treyst því fullkomlega, að matið færi eins fram á öllum stöðum á landinu. Og það liggur í hlutarins eðli, að til þess að tryggja samræmi í framkvæmd matsins verður að fela einum manni að hafa yfirumsjón með matinu, því að ef fleiri eru og hver hefir sinn hátt á um framkvæmd matsins, þá getur orðið allmikið ósamræmi á því. Ég vil líka leggja áherzlu á nauðsyn þess, að sá maður, sem hefir það starf á höndum að samræma kjötmatið, eigi þess kost að fara til útlanda og fylgjast sem bezt með þeim kröfum, sem þar eru gerðar af hálfu neytenda.
Ég þykist mega vænta þess, ef þeir menn, sem hafa haft mest með þessi mál að gera ef þeir hafa átt kost á að kynna sér þessa brtt. og líta eingöngu á það atriði, hversu nauðsynlegt sé að samræma kjötmatið —, taki þessari brtt. vinsamlegar en hæstv. forsrh.