05.03.1935
Efri deild: 17. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2444 í B-deild Alþingistíðinda. (166)
Minning látinna manna
forseti (EÁrna):
Áður en tekið verður til fundastarfa þykir mér hlýða að minnast nýlátins fyrrv. þingmanns, sem átti síðast sæti í þessari deild. Þessi maður er séra Björn Þorláksson, fyrrum prestur að Dvergasteini.
Síra Björn var fæddur 15. apríl 1851 á Gautlöndum, sonur síra Þorláks prests að Mývatnsþingum Jónssonar og síðustu konu hans, Rebekku Björnsdóttur, bónda á Bakka á Tjörnesi, Pálssonar. Hann útskrifaðist úr lærða skólanum í Reykjavík 1870 og úr prestaskólanum 1873. Árið eftir var honum veitt Hjaltastaðaprestakali á Úthéraði frá fardögum 1875, og þar var hann prestur næstu níu árin, til 1884. Þá var honum veittur Dvergasteinn í Seyðisfirði, og því prestakalli þjónaði hann síðan í 42 ár, til 1926, er honum var veitt lausn frá embætti. Alls var hann því þjónandi prestur í 51 ár. Hann átti sæti á Alþingi á þingunum 1909 og 1911—1915, var þm. Seyðfirðinga 1909—1911 og konungkjörinn þingmaður frá 1912 til 1915. Auk þess gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum í héraði sínu, var m. a. hreppsnefndaroddviti og sýslunefndarmaður Seyðisfjarðarhrepps í 32 ár samfleytt. Hann andaðist hér í bænum síðastl. sunnudag, 3. þ. m.
Síra Björn Þorláksson var þrekmenni, fastur í skoðunum kappsfullur og fylginn sér, þótti búhöldur góður og fjárgæzlumaður og ráðhollur í héraðsmálum. Á Alþingi var bindindis- og bannmálið hið mesta áhugamál hans, og fyrir því máli beitti hann sér jafnan fast, bæði utan þings og innan.
Ég vil biðja háttv. deildarmenn að votta minningu þessa látna manns virðingu sína með því að rísa úr sætum sínum.
[Allir þdm. stóðu upp.]