18.10.1935
Neðri deild: 51. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1127 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)

111. mál, gelding húsdýra

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég hefi ekki séð brtt. á þskj. 399 fyrr en nú í byrjun fundarins, en vegna þess að mál þetta á að útkljá hér í hv. d. við þessa umr., vildi ég sem frsm. málsins óska þess, að málið verði tekið út af dagskrá í dag, svo hv. þdm. gefist tækifæri til að athuga brtt. Það er ekki hægt að ætlast til þess, að hv. þm. séu tilbúnir að ræða till. á sama augnabliki og þar eru lagðar fram.