18.10.1935
Efri deild: 47. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1131 í B-deild Alþingistíðinda. (1679)

101. mál, síldar- og ufsaveiði

Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):

Við 1. umr. þessa máls hér í d. var gerð nokkur grein fyrir því. Ég sé ekki ástæðu til að fara langt út í það nú. Ég læt mér nægja að vísa til þeirrar grg., sem fylgir frv. Hún gefur nægilega skýringu og fullljóst yfirlit um það, hvers vegna breyt. er komin fram upphaflega og hvaða breyt. er gerð á l. 1934.

Sjútvn. hefir ekki orðið sammála um málið. við hv. þm. N.-Ísf. viljum afgr. það eins og það liggur fyrir, en meðnm. okkar hefir ekki getað fallizt á það, og skilar hann sérstöku nál. á þskj. 395. Ég ætla ekki að fara út í þennan ágreining, en gefa frsm. minni hl. tækifæri til að skýra afstöðu sína áður. Ég vil aðeins benda á, að með þeim l., sem samþ. voru á Alþingi 1934 virðist ekki tekið nóg til greina, hver réttur ábúanda ber innan netlaga fyrir sínu landi. Af þeirri ástæðu vil ég leiðrétta með þessari breyt. það, sem rangt er í l. frá 1934. Það eru allir sammála um, að landeiganda beri veiði innan netlaga með dragnót, og þá ætti að vera sama með öðrum veiðarfærum. Ég hefi alltaf litið svo á, að aðaltilgangurinn með l. frá 1934 hafi verið sá, að fá viðurkennt, að einnig sé heimilt að fiska með herpinót í netlögum annara manna. En það gat orkað tvímælis, hvort þetta var heimilt eftir tilsk. 1872.

Þá ástæðu getur ekki verið um að ræða, að hér sé verið að skattskylda veiðimenn, því að samskonar ákvæði eru fyrir um veiði með dragnót. Hver sanngjarn maður hlýtur að viðurkenna, að hér er aðeins verið að leiðrétta óheppileg mistök í l. frá 1934. — Læt ég svo þetta nægja, þar til frsm. minni hl. hefir talað.