18.10.1935
Efri deild: 47. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1132 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)
101. mál, síldar- og ufsaveiði
Frsm. meiri hl. (lngvar Pálmason):
Mér finnst rök frsm. minni hl. vera heldur veigalítil, en þó er annað lakara, að hann lítur ekki á rá hlið, sem máli skiptir, sem sé rétt ábúanda, hvort sem það eru jarðeigendur eða ekki, til netlaga. Það er viðurkennt í l., að ábúandi eigi veiðirétt, ég held 60 faðma fram af landi. þann rétt má ekki skerða, nema bætur komi fyrir. Eftir tilsk. 1872 voru taldar hæfilegar bætur fyrir ufsaveiði með nót 4 af hundraði. Að verið sé hér að skattleggja menn sérstaklega, kemur ekki til mála, þar sem þetta hefir verið í l. áður.
Það, sem hér er um að ræða, er það, hvort herpinót á að koma undir sömu ákvæði og dragnót. Alþ. hefir gengið inn á það með l. 1934. Um leið og viðurkennt er, að þarna sé tekinn réttur af ábúanda, verður hann að fá hæfilegar bætur fyrir. Sjómönnum er ekki gerður greiði með því, að herpinót komi ekki undir sömu ákvæði og lagnót. Það er miklu frekar bjarnargreiði við sjómenn. Þegar tilsk. 1872 var samin, þekktist ekki þessi veiðiaðferð, og það eru til fleiri veiðiaðferðir, sem hægt væri að færa undir netlög, ýms botnveiði. En ég álít, að slík veiði hafi ekki stuðning í tilsk. frá 1872 né l. 1934. Hér er verið að bæta við leyfi fyrir fiskimenn að veiða með þessum áhöldum líka, auðvitað gegn því, að þeir greiði landeigendum nokkrar bætur. En þessar prósentur eru svo lágar, að þær skipta ekki miklu máli.
Hvað það snertir, að átt geti sér stað, að veitt sé í netlögum í óbyggðum, án þess nokkrir viti um, þá getur það verið, en vekja má athygli á því, að með herpinót er sjaldan veitt á grunnu vatni, svo að þær taki ekki í botn og nótin skemmist. Veiði með þeim nálægt landi mun því vera fátið, nema í fjörðum, þar sem nægilegt dýpi er, eins og t. d. á Austfjörðum.
Hinsvegar getur orðið ágreiningur út af því, að skip getur rekið inn í netlög, en það held ég komi þó ekki oft fyrir. Bæði um veiði með dragnót og herpinót eiga ákvæði þessa frv. aðallega við veiði innan fjarða. Og þá ætti það ekki að þurfa að vekja mikinn ágreining, hvenær ætti að gjalda landshlut og hvenær ekki. Hitt getur komið fyrir, er skip veiða í herpinót, að þau veiði eitt kastið innan netlaga, annað fyrir utan, og síldin getur þannig lent saman. En úr þessum ágreiningi er auðvelt að leysa. Fyrir þann ágreining er því ekki fórnandi að ganga á hinn tvímælalausa rétt ábúanda, er hann á innan netlaga.
Aðaltilgangur l. frá 1934 var að lögfesta, að heimilt væri að veiða með herpinót innan netlaga, en ekki að afnema landshlut, því þá hefði átt líka að afnema tilsk. 1872 með dragnót.
Ég held að það sé óþarfi að jagast mikið um þetta mál, því það liggur svo hreint fyrir. Ég trú ekki fyrr en ég tek á, að hv. þm. gangi inn á að veita slík fríðindi á kostnað ábúanda án þess bætur komi fyrir. Hitt getur að vísu í einstökum tilfellum orðið álitamál, fyrir hve mikinn hluta aflans þurfi að bæta. En ég tel, að það hnekki ekki gildi eða nauðsyn frv., og sé gætt hófs, býst ég ekki við, að það muni valda tilfinnanlegum ágreiningi. Hitt er allt annað mál, sem hér er deilt um, hvort sá grundvöllur, sem minni hl. stendur á, sé réttlátur: að taka þennan rétt af ábúendunum án nokkurra bóta.